20.03.1925
Neðri deild: 38. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 303 í D-deild Alþingistíðinda. (3224)
98. mál, Krossanesmálið
Jakob Möller:
Það liggur fyrir að ganga til atkv. um það, hvort hv. deild skipi nefnd til að rannsaka Krossanesmálið. Jeg hefi haldið spurnum fyrir um álit manna úti í frá á þessu máli, og hefir mjer heyrst allir vera sammála um, að það sje þannig vaxið, að það gangi hneyksli næst, ef við svo búið er látið standa. Jeg segi óhikað, að fyrsta ástæðan til þess, að þinginu beri að hefjast handa í málinu, er sú, að almannarómurinn krefst þess. Það er sem sje trú alls almennings, að framkvæmdarstjóri Krossanesverksmiðjunnar hafi haft fje af mönnum í stórum stíl. Það hefir ekki enn komið skýrt fram, hvernig hæstv. stjórn lítur á málið, en jeg held mjer sje óhætt að fullyrða, að hún sje andvíg rannsókn. Það er ekki gott að segja, af hverju svo er, og eiginlega geta aðeins verið tvær ástæður til þess. Önnur er sú, að hún telji málið þegar fullrannsakað, og því engra frekari aðgerða þörf, en hin er sú, að það gæti komið henni óþægilega, ef málið yrði upplýst.
Hæstv. atvrh. (MG) hefir nú gefið skýrslu um sín afskifti af málinu. Það fyrsta, sem jeg tók eftir í ræðu hans, var að síldarmælikerin hefðu ekki verið löggildingarskyld. Mig furðar stórum á, að hæstv. ráðherra skuli láta sjer þetta um munn fara, því að það er tekið fram í lögum um mælitæki- og vogaráhöld, að allir þeir, sem reka þannig viðskifti, að þeir þurfa að mæla eða vega varning, eru skyldir að hafa til þess löggilt áhöld. Að Krossanesverksmiðjan hafi rekið slík viðskifti, er tvímælalaust. Og hvað sem hæstv. ráðh. segir um þetta, voru mælikerin áreiðanlega löggildingarskyld. Og í skeyti, sem hann las upp, til bæjarfógetans á Akureyri, segir frá því, að hæstv. stjórn hafi falið honum að rannsaka, hvort ólöggild og röng mæliker hafi verið notuð í Krossanesi. Í þessu skeyti er því slegið föstu, að mælikerin hafi verið löggildingarskyld. En síðan sagði hæstv. ráðh., að með löggildingunni hafi viðskiftamenn verksmiðjunnar verið trygðir gegn því að tapa í áframhaldandi viðskiftum við verksmiðjuna á því, að mælikerin væru of stór. Það er þannig af orðum hæstv. ráðh. einnig upplýst, að mælikerin hafi verið röng, og þá er eftir að fá sannað, hvort verksmiðjan hafi haft af mönnum fje með því að nota þessi röngu mál, og í öðru lagi hvort það hafi verið gert af ásettu ráði. En þetta finst mjer að hæstv. ráðh. játi, að sje órannsakað.
Það virðist liggja í orðum hstv. ráðh., að hann gangi út frá, að fje hafi að vísu verið haft af mönnum, en ekki af ásettu ráði, og því sje engin ástæða fyrir það opinbera að hefjast handa í þessu máli fyr en kærur komi fram. En það er afarhættulegt, ef sú trú kemst inn hjá almenningi, að í slíkum efnum sje leyfilegt að haga sjer eins og hverjum sýnist, meðan engir kvarta. Þess vegna á, þegar um önnur eins mál og þetta er að ræða, að fylgja þeim fram með fullri festu. Hæstv. ráðh. viðurkennir, að hann þekki lítið til þessara hluta, og kveðst vera því ókunnugur, hvernig mæling og uppskipun síldar fari fram, og því geti hann ekkert um þetta dæmt. Þetta er nú mjög svo hreinskilnislega játað af hæstv. ráðh. En jafnframt er það fullkomin játning um það, að hann hafi ekkert getað rannsakað málið, og ekki heldur gert það. En svo ber hann því við, að framkvæmdarstjóri Krossanesverksmiðjunnar hafi verið í góðri trú um, að hann hefði ekki af mönnum í viðskiftunum. En um það getur hann ekkert vitað. Mjer finst það vera augljóst, að ekki er mark takandi á slíkum fullyrðingum málsaðilja.
Hæstv. ráðh. sagði, í sambandi við ráðningu verkafólks, að framkvæmdarstjóri hefði þverneitað því, að hann hefði látið sjer til hugar koma að sækja um leyfi stjórnarinnar til þess að flytja verkafólk inn. Þrátt fyrir það segir hann, að framkvæmdarstjórinn hafi látið sækja um slíkt leyfi. Er maðurinn þá ber að ósannsögli í því máli. Það er líka skemst á að minnast, hvað hann segir í skýrslum þeim, sem hann hefir gefið um mál þetta í Noregi. Þar segir hann, að hann hafi látið mælinguna fara fram í sjerstökum löggiltum mælikerum, en það er upplýst og viðurkent af verksmiðjustjóranum við eftirlitsmann löggildingarstofunnar og við atvrh. í sumar, að þau ker hafi aldrei verið notuð. Þó segir framkvæmdarstjórinn í Noregi, að með þeim hafi síldin verið mæld, eftir að hún kom úr skipi. Og með þessum röngu skýrslum, sem hann gefur í Noregi, játar hann sekt sína. Jeg trúi því, að hæstv. ráðh. sje ókunnugt um uppskipun og mælingu síldar, og hafi því tekið trúanlegt það, sem framkvæmdarstjórinn sagði, um að síldin ódrýgðist við uppskipun. En hæstv. ráðherra virðist ekki hafa talað um þetta við aðra menn, sem kunnugleika hafa á þessu sviði. Sannleikurinn er sá, að það er örsjaldan, að nokkru muni við uppskipunina. Annars hagar svo til í þessari verksmiðju, að þar er sjerstakur maður, sem sjer um mælinguna, og mun hann hafa gengið ríkt eftir, að kerin væru full.
Og það er að minsta kosti ljóst af því, sem hæstv. ráðherra hefir sagt, að rannsókn hans á málinu hefir aðallega beinst að því að fá að vita, hvernig annar málsaðili hefir litið á þetta. Um viðskiftamenn er ekki talað. En þar sem þessi framkvæmdarstjóri nú hefir gripið til þess að segja rangt frá öllum málavöxtum í Noregi, ákærir hann sjálfan sig svo geipilega, að erfitt er að efast um sekt hans eftir það.
Hæstv. ráðh. sagði þetta dæmi um Krossanesverksmiðjuna ekki einsdæmi. Slíkt hefði komið fyrir einnig hjá öðrum verksmiðjum, en ekkert dæmið komst þó neitt nálægt þessari verksmiðju. Krossanesverksmiðjan er einhver elsta verksmiðjan, og ef til vill hafa hinar litið svo á, að „hvað höfðingjarnir hafast að, hinir ætla sjer leyfist það“. Í sumum tilfellum voru líka mælikerin minni en þau eiga að vera, en í sumum því sem næst nákvæmlega rjett.
Það er að minsta kosti ein síldarverksmiðja á Siglufirði, sem hafði því sem næst nákvæm mál, og þá verður auðsætt, að Krossanesverksmiðjan og hinar, sem siglt hafa í kjölfar hennar, hafa bæði haft af mönnum fje og einnig beitt óheiðarlegri samkepni við heiðarlegu fyrirtækin. Á þessu er líka hægt að sjá, að alt þetta mas um ódrýgindi síldarinnar í uppskipun er eintómur þvættingur. Hinar verksmiðjurnar hefðu áreiðanlega reynt að tryggja sjer uppbót á því, ef nokkru hefði munað. Við því, sem hæstv. ráðh. sagði um að framkvæmdarstjórinn hefði haft í hyggju að vega síldina, eða að minsta kosti hefðu vogimar verið til, er því að svara, að vogimar hafa sjálfsagt verið ætlaðar til þess að vega með afurðirnar, sem út væru fluttar. Annars vil jeg benda á það, að ef framkvæmdarstjórinn hefir haft tilhneigingu til að hafa af viðskiftamönnum á þennan hátt, gæti hann sjálfsagt haft einhver ráð til þess, þó að vogir væru notaðar í stað mælikera. Ýmsar vogir eru þannig, að eigandinn getur látið þr vega eins og honum hentar það og það skiftið. En sú aðferð mun tryggari en hin. Mælikerin segja til sín, en erfiðara er að „kontrollera“ vogirnar.
Hæstv. atvrh. hjelt því fram, að óviðurkvæmilegt hefði þótt að beita hörku við þennan eina mann, þó að upplýst væri, að hann hefði notað röng mælitæki, því að reynsla mælitækjastofunnar sýndi, að 68% af öllum vogaráhöldum í landinu hefði verið röng við fyrstu skoðun.
Samanburður hæstv. ráðh. á þeirri reynslu, sem löggildingarstofan þannig hefir fengið um rangan mæli og vog alment, á ekki hjer við. Það er enginn vafi á því, að þau mælitæki, sem löggildingarstofan hefir leiðrjett hjá einstökum kaupsýslumönnum, hafa verið orðin röng án vitundar eigendanna, einungis af notkuninni. Þau hafa líka vafalaust verið rjett í upphafi. Öðru máli er að gegna um síldarverksmiðjumar. Þar hafa mælitækin altaf verið röng. Og það hlýtur framkvæmdarstjórinn að hafa vitað, því að hann hefir haft rjett mælitæki við hliðina á þessum, enda svo kunnugur slíkum mælitækjum, að hann hlaut að vita, hvort þau voru rjett.
Hæstv. atvrh. bætti líka úr skák gagnvart innlendum mönnum, sem löggildingarstofan sannaði að notað hefði röng vogartæki, er hann gat þess, að einkum hefði ein sjerstök tegund borðvoga reynst þannig, að þær hefðu vegið illa inn, en ríflega út. Sje átt við borðvogir eins og í búðum tíðkast, þá er auðsætt, að skekkjan hefir ekki verið gerð í gróðaskyni, þar sem þær eru notaðar eingöngu til þess að vigta út, en ekkert inn.
Enn er eitt að athuga í sambandi við mælitækin í Krossanesi, sem nú er sannað hvað tóku og hæstv. atvrh. trúir, að viðskiftamennimir hafi haft gagn af að voru löggilt sem 170 lítra ker. Hvernig fer þessi vesalings verksmiðja að, þegar hún á framvegis að nota þessi ker, ef henni hefir verið nauðsynlegt að hafa þau of stór, til þess að fá það, sem henni bar? Hæstv. atvrh. virtist trúa á það, að hún myndi reyna betur en áður að sjá sínum hag borgið, með því að fylgja því fram, að kerin yrðu vel fylt. En ef þau hafa verið fylt áður svo út af flóði, þá virðist ekki auðvelt að gera það betur framvegis. En það er einmitt eitt aðalatriði þessa máls, sem ekki hefir verið rannsakað, en þarf að rannsaka, til þess að komist verði að rjettri niðurstöðu, sem sje hvernig gengið hafi verið eftir því, að kerin væri full. Skildist á hæstv. ráðh., að framkvæmdarstjóranum væri skylt að nota rjett mæliker, er hið opinbera skipaði honum það. Vitanlega hefir honum altaf verið skylt að hafa rjett mæliker og nota þau samviskusamlega.
Málið virðist mjer liggja þannig fyrir, að ekki verði deilt um það, að framkvæmdarstjóri Krossanesverksmiðjunnar sje mjög grunsamur um að hafa beitt svikum í viðskiftum sínum. Og eins og jeg sagði í upphafi, er þetta skoðun alls almennings. Og jeg er sannfærður um það, að verði hjer við látið lenda, þá verður það til þess að drepa niður virðingu manna fyrir lögum og rjetti í landinu, meira en áður er orðið. Þess vegna teldi jeg illa farið, ef þetta þing skildi svo við, að ekkert yrði í málinu gert. Jeg veit ekki, hvað því veldur, að stjórnin hefir tekið svo mjúkum höndum á þessu máli. En jeg get gert mjer hugmynd um, að það hafi verið af einhverri hræðslu við að styggja volduga menn annara þjóða. En það er hættulegt þessari litlu þjóð, ef slík hræðsla nær tökum á valdsmönnum hennar. Því hvaða takmörk eru fyrir því, hvað aðrar voldugar þjóðir muni þora að hafa í frammi við okkur, ef við, þar sem er um næstum augljósa glæpi að ræða, þorum ekki að hafa hendur í hári þeirra, er slíka glæpi fremja.
Hæstv. forsrh. (JM) sagði nokkur orð um þetta mál. Þau lutu aðallega að því að bera sökina af honum sjálfum. Það kemur mönnum ef til vill ekki mjög á óvart. En jeg er sannfærður um, að því trúir ekki nokkur maður á þessu landi, að þessu máli hafi verið þannig til lykta ráðið í stjórninni, að atvrh. og forsrh. hafi ekki talað um það sín á milli, hvernig með það ætti að fara. Með því að hæstv. forsrh. er dómsmálaráðherra, leikur enginn vafi á, hvor sökina á, ef um sök er að ræða, og ekki er heldur vafa bundið, hvar ábyrgðin lendir í vitund alls almennings, — Hæstv. forsrh. taldi líka heldur litla ástæðu til þess, að hann hefði farið að rjúka upp og heimta rannsókn, án þess að fá nokkra hvatningu frá atvrh. Og jeg verð nú að játa, að jeg hefi aldrei búist við því, að hæstv. dómsmálaráðherra færi að rjúka upp út af smámunum ótilkvaddur. — Annað mál er það, hvort honum hefði borið að „rjúka upp“.
Að endingu vil jeg segja, að mjer þykir eftirtektarvert, hvernig hæstv. stjórn tekur þetta mál. Henni virðist ekki blandast um það hugur, hver myndi verða niðurstaða þeirrar nefndar, er skipuð yrði til rannsóknar. Hæstv. atvrh. sagði, að það væri ógerningur að skipa nefnd, vegna þess, að það væri ómögulegt sem stæði að ná í annan málsaðilja til að tala við, og væri óviðkunnanlegt að höfða sakamál án þess. Virðist mjer í þessu liggja það, að hann gangi út frá því sem gefnum hlut, að ekki aðeins nefndin, heldur einnig þingið, myndi komast að þeirri niðurstöðu, að nauðsynlegt væri að hefja sakamálsrannsókn. Og það er einmitt líklegasta niðurstaðan. En því ákveðnari er jeg að greiða atkvæði með tillögunni, sem mjer þykir líklegra, að þessi verði endir á málinu. Ef jeg áliti, að málið fjelli niður eftir nefndarrannsóknina, mundi jeg láta mig þetta minna skifta.
Það eina, sem gæti afsakað afstöðu hæstv. stjórnar og þeirra þingdeildarmanna, er henni fylgja, ef þeir drepa málið í dag, væri það, að þeir væru sannfærðir um, að málið væri þannig vaxið, að engra frekari aðgerða þyrfti við en þegar eru framkvæmdar. En sú sannfæring kemur ekki fram í orðum hæstv. atvrh. Miklu fremur hið gagnstæða. Og ef sannfæringin er á þann veg, þá má hæstv. stjórn og stuðningsmenn hennar vita, að þeir eru ekki búnir að bíta úr nálinni með þetta mál.