21.03.1925
Neðri deild: 39. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 357 í D-deild Alþingistíðinda. (3234)

98. mál, Krossanesmálið

Jakob Möller:

Hv. 1. þm. Árn. (MT) hefir að nokkru leyti tekið af mjer ómakið, en jeg verð þó að gera nokkrar athugasemdir út af ræðu hæstv. fjrh. (JÞ). Jeg var svo hissa á ræðu hans, því að mjer fanst hún eiga svo lítið erindi inn í þessar umr. Jeg var að segja frá því, að skip hefði siglt ólöglega undir íslensku flaggi; jeg upplýsti, að norskt skip hefði siglt undir íslensku flaggi hjer á sumrum, en undir norsku á vetrum í Noregi, sem og rjett var. Þetta gerði skipið sumarið 1922 og var þá í eigu þessa sama manns. Þá voru og brotin ýms önnur lög, ef skipið hefði átt að heita íslenskt, t. d. með því, að allir yfirmenn voru norskir, og með þessu hefir eigandi skipsins svo krossbrotið íslensk lög og á þann hátt, að það verður varla gerður mikill munur á þeim brotum hans og því broti, sem hjer er um að ræða, siðferðislega sjeð.

Jeg var ekki að ákæra núverandi stjórn, og ekki heldur fyrverandi stjóra, í sambandi við þetta Rolfsmál, því að jeg sagði, að þetta mál hefði strandað hjá bæjarfógetanum á Akureyri. En það hefir töluverða þýðingu í þessu máli, hvernig mál þetta strandaði, því að þeir menn, sem hafa afskifti af því, koma einnig fram í Krossanesmálinu, því máli, sem hjer er um að ræða.

Svo fór hæstv. fjrh. (JÞ) að upplýsa hv. deild um þetta, sem hv. þm. Ísaf. (SigurjJ) skýrði svo rækilega fyrir henni í gær, að það sýndist óþarfi að fara að bæta ofan á það, en úr því að þeir eru orðnir tveir um þessar upplýsingar, skal jeg leyfa mjer að leggja til nokkuð líka, einmitt út af því, sem hv. þm. Ísaf. (SigurjJ) sagði, því að hann sagði, að það væri venjulegt að reikna síldarmálið sem helming af þrem kúfsöltuðum síldarstrokkum, en það er að því að gá, að í kúfsöltuðum strokk er einn fjórði hlutinn salt, en það er 27 lítrar. Í einni tunnu er þá af salti 27 kg. + 131/2 kg. = 401/2 kg., en af síld 127 kg. (SigurjJ: Má jeg gefa upplýsingar um þetta?). Jú, jeg veit, að það er hægt að gefa þær upplýsingar, að eitthvað gangi úr síldinni. (SigurjJ: Síldinni er í öðru tilfellinu raðað, en í hinu óraðað.). Jú, rjett, en það munar hvergi nærri eins miklu og saltinu. En annars, eins og jeg tók fram áður, kemur þetta málinu ekkert við, því að hjer var samið um ákveðið mál, 150 lítra, en ekki helminginn af þrem kúfsöltuðum síldartunnum.

Þá vil jeg víkja nokkrum orðum að hæstv. atvrh. (MG), þó að það sje eina ráðið við hann að mótmæla því, sem hann fer rangt með, um leið, því að annars endurtekur hæstv. ráðherra (MG) það bara hvað eftir annað. En úr því að hæstv. ráðherra (MG) var að skora á mig að taka til máls, vil jeg verða við því. Jeg skal þá segja hæstv. atvrh. (MG) það, að jeg hefi myndað mjer skoðun um þetta mál algerlega af því, sem hann hefir upplýst. Hæstv. ráðherra (MG) segir, að í Krossanesi hefði verið samið um 150 lítra mál, sagði þetta í viðtali við Morgunblaðið, og hefir aldrei neitað því, og það er alkunnugt, að það var samið nær undantekningarlaust þannig, enda hefir framkvæmdarstjórinn ekki reynt að komast hjá því, að þannig hefði verið samið. Jeg hefi líka bygt á því, sem hæstv. atvrh. (MG) sagði um það, hvaða undanfærslum framkvæmdarstjórinn hefði beitt. Hann hefir beitt því fyrir, að það fjelli svo og svo mikið úr mælikerunum, en það er ekki nema vitleysa, því að úr mælikerunum er við skipshlið helt í stóra vagna, sem ekkert þarf að fara út úr, og auk þess mun vera hafður maður á bryggjusporði, sem lítur eftir því, að kerin sjeu vel full. Jeg endurtek það, að jeg hefi bygt skoðun mína á þeirri rannsókn í málinu, sem hæstv. atvrh. (MG) hefir framkvæmt, en mjer finst bara, að þessi rannsókn haft leitt það í ljós, sem hann þykist ekki hafa komið auga á. Jeg held því fram, að jeg gæti jafnvel leitt hæstv. atvrh. (MG) sjálfan sem vitni í þessu máli, t. d. um það, að ávalt mun þarna hafa verið samið um 150 lítra mál. Ef hann gengur frá þessu aftur, sem hann er búinn að viðurkenna, er hann tvísaga. Hann hefir einnig viðurkent, að forstöðumaður Krossanesverksmiðjunnar hafi vitað, að mælikerin voru stærri en 150 lítra. Ef hann gengur frá því, er hann einnig þar líka tvísaga. Hann veit, að 150 lítra kerin voru aldrei notuð, og því segi jeg, að þó hann máske verði ekki beinlínis talinn tvísaga í þessu, neitar hann þó því, sem hann veit með vissu að er rjett.

Að endingu segi jeg aðeins þetta: Ef stjórnin heldur því fram, að engin kæra hafi komið fram um þetta mál, vill hæstv. atvrh. Þá leggja fram brjef það, sem stjórninni barst frá forstöðumanni löggildingarstofunnar, eða bar það ekki að skoða sem kæru? Hafði ekki verið símað frá Akureyri, að notuð væru röng mæliker við síldarkaupin í Krossanesi, eða var það ekki kæra? Jeg held, að það verði ekki auðvelt að komast fram hjá því, að kært hafi verið yfir þessu athæfi. Hæstv. atvrh. kvartar yfir því, að jeg hafi bendlað þennan mann við glæp. Þetta hefir staðið í ýmsum blöðum, og hæstv. atvrh. sagði áðan, að það hefði staðið í blaði, sem mjer er viðkomandi. Er það þá ekki kæra? Þessum manni er frjálst að hefja málssókn á hendur blöðunum, ef hann vill, og einnig gegn mjer hvenær sem er. Jeg mun ekki skjóta mjer undan nje skríða undir þinghelgina.

Þessi maður hefir ekki gert neitt til þess að hreinsa sig af þessum áburði hjer á landi, en í Noregi hefir hann reynt það og ferst það þá þannig, að hann ber fyrir sig rangar skýrslur og skýrir rangt frá staðreyndum. Hann gefur þar falskar upplýsingar um málið. Ákærir hann þá ekki sjálfan sig með þessu framferði sínu? Jeg skil það vel, að stjórnina taki sárt til þessa manns, ef hann skal bendlaður við glæpsamlegt athæfi, því það er þá um leið ásökun í garð stjórnarinnar. En ef stjórninni er verulega ant um mannorð þessa manns og veit, að hann er saklaus, því vill hún þá ekki fá þessa rannsókn til þess að hreinsa manninn ? Hitt er leiðinlegra, ef stjórnin treystist ekki til að hreinsa hann, en er þó að baxa við að reyna að verja hann.