21.03.1925
Neðri deild: 39. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 386 í D-deild Alþingistíðinda. (3243)
98. mál, Krossanesmálið
Flm. (Tryggvi Þórhallsson):
Jeg hygg, að liðinn sje heill sólarhringur síðan jeg tók seinast til máls, og hefir þó ekkert annað mál en þetta verið á dagskrá, og fundir verið lengdir. Jeg tek það fram, að með flutningi þessarar till. hefi jeg ekki gefið tilefni til nema lítils hluta af þeim umr., sem hjer hafa fram farið. Jeg hefi ekki, og sama máli gegnir um formann Framsóknarflokksins (ÞorlJ), sem tók til máls, leitt annað umræðuefni í hv. deild en það, hvort hið háa Alþingi megi fá aðstöðu til að kynna sjer tryggilega það mál, er hjer um ræðir. Hefir engin ásökun komið fram hjá mjer nje úr mínum flokki á neinum manni. Enn mun jeg halda mjer á sama grundvelli og áður og ekki fara neitt út í einstök atriði. Jeg ræði og spyr aðeins um þetta eitt: Á Alþingi að fá leyfi til að kynna sjer þetta mál eða á það ekki að fá það?
Þess vegna mun jeg leiða hjá mjer flest þau ummæli, sem fallið hafa síðasta sólarhringinn, og aðeins víkja örlítið að því, er hæstv. atvrh. (MG) sagði í svarræðu sinni til mín í gær, síðan drepa á nokkur orð hæstv. forsrh. (JM), og að lokum mun jeg lítið eitt minnast á þá rökstuddu dagskrá, sem hjer hefir verið lögð fram.
En áður en jeg vík að ræðu hæstv. atvrh. (MG) vil jeg segja eitt alment.
Hingað til, bæði á þinginu í fyrra og nú, hefi jeg átt meiri skifti og háð þyngra stríð við annan hæstv. ráðh. en hæstv. atvrh. (MG), sem sje hæstv. fjrh. (JÞ). Og jeg verð að segja, að þótt enn lengra muni vera á milli okkar skoðana á málunum, hefir mjer þótt að öllu leyti betra að eiga orðastað við hæstv. fjrh. (JÞ) en hæstv. atvrh. (MG). Hann fer yfirleitt samviskusamlega með orð andstæðinganna. En hvort það er því að kenna, að hæstv. atvrh. (MG) er svo mikill málaflutningsmaður, veit jeg ekki, en mjer finst honum hætta helst til að færa um of úr lagi orð andstæðinganna og leggja rangt út af þeim.
Þetta var nú alment, en jeg mun færa rök að því síðar.
Hæstv. atvrh. sagði, að jeg hefði ásakað hann fyrir hina löngu skýrslu hans. Hjer fór hann rangt með. Jeg benti að vísu á, að hann hefði örlítið talað um þá hlið málsins, er jeg ræði einvörðungu um, þá, hvort málið ætti að rannsaka eða ekki. Skýrsluna vítti jeg ekki, en jeg tók það fram um hana, að hún fullnægði ekki, og eins hitt, að hún jafnvel ylli því, sakir einstakra atriða, sem þar kæmu fram, að enn meiri þörf virtist vera til rannsóknar en áður. Og af þessu varð jeg vitanlega og verð enn að halda fast við þá kröfu, að Alþingi fái að rannsaka málið.
Hæstv. atvrh. sagði, að það, að jeg legði ekki dóm á gerðir hæstv. landsstjórnar, en hefði gert það áður, sýndi, að jeg væri nú að byrja að viðurkenna, að jeg hefði ofmælt um syndir hæstv. stjórnar í málinu, og jeg og Framsóknarflokkurinn værum nú að renna. Gott og vel, jeg hefi ekki á móti, að hann hafi þann skilning. En hver hlýtur að verða afleiðing þess? Hafi hann þennan skilning, því vill hann þá ekki ganga á lagið og leyfa Framsóknarflokknum að kjósa tvo menn í nefnd — hans flokkur getur kosið aðra tvo — til að rannsaka málið. Því hafi hann rjett fyrir sjer, þá getur sú rannsókn aðeins orðið til þess, að við hreinsum hann alveg og sýknum, og er óvíst nema af veiti. Rannsóknin getur aldrei orðið nema til góðs, eftir hans eigin skoðun.
Hæstv. atvrh. vjek að Noregi. Einmitt af því, að málið snýr svo mikið út á við, lagði jeg þegar í upphafi mikla áherslu á, að ekki væri um það rifist hjer, heldur að það yrði athugað rólega og í kyrþey í nefnd. Hæstv. atvrh. sagði, að ekkert benti á, að þetta væri orðið stórmál í Noregi. En það er þvert á móti. Stórþingsmaður þar í landi á í hlut, og hann hefir neyðst til að gefa skýrslu um málið til utanríkisráðuneytisins.
Það er líka stórmál fyrir okkur, því að sá maður, sem við verðum að telja fulltrúa sjávarútvegsins okkar, er stimplaður sem ósannindamaður í Noregi, og þótt ekki sje í orði, þá er þó í verki dregið þar dár að íslenskum embættismanni, og jafnvel að atvinnumálaráðherra Íslands. Til þess að draga úr því, að þetta væri stórmál í Noregi, vjek hæstv. atvrh. að þeirri tilgátu, að pólitískir andstæðingar verksmiðjustjórans mundu vera að verki í norsku blöðunum. En það er upplýst, að svo er ekki, heldur er það íslenskur ríkisborgari, sem fæddur er í Noregi og á þar annað föðurland, sem hrundið hefir málinu af stað þar í landi, og það af rjettlætistilfinning einni og tilknúður jafnframt af þeirri þrá að reyna að koma í veg fyrir, að af málum hlytist missætti milli Íslands og Noregs. Þetta er það rjetta. Jeg hefi lesið talsvert um málið í norskum blöðum, en hvergi sjeð þess vott, að það væri notað sem vopn af pólitískum andstæðingum verksmiðjustjórans.
Þá kem jeg að því, sem hæstv. atvrh. rangfærði mest í minni ræðu. Hann kvað mig hafa sagt, að jeg vildi hæstv. stjórn vel og að það væri vegna velferðar hennar, að jeg hefði farið þessa leið. Þetta er algerður misskilningur, og sagði jeg aldrei þetta, heldur sagði jeg, að það væri málsins vegna, að jeg hefði kosið að fara þessa leið. Af því að það væri utanríkismál og svo alvarlegt sem það væri, þá teldi jeg sjálfsagt, að sem minst yrði deilt um það hjer á fundi, en það fullrannsakað í nefnd. Og þess vegna byðist hæstv. landsstjórn með þessari till. útrjett hönd okkar Framsóknarmanna til þess að fá sem best vinnubrögð í þessu máli og það sem ítarlegast skoðað. Í þessu sambandi, um útrjettu höndina, var hæstv. atvrh. að líkja mjer við mann, sem oft væri myndaður með ref á bak við eyrað. Jeg veit vel, hvern við er átt, mesta bændaleiðtoga Dana, J. C. Christensen, Jeg hefi oft sjeð mynd af þeim manni með ref á bak við eyrað eða sem gægist upp úr vasanum, og jeg tel mjer stórsóma að vera líkt við hann. En ef samlíkingin er rjett, af hverju finst þá hæstv. atvrh., að slóttskapar kenni hjá mjer, er jeg býð, að málið sje rannsakað í nefnd? Ef það er slóttskapur, þá hlýtur hann að koma af því, að hæstv. atvrh. finnist það hættulegt fyrir hæstv. stjórn, að málið sje rannsakað. Annars væri enginn slóttskapur af mjer að fara fram á nefndarskipun.
Jeg ætla að víkja að því atriði nú, þótt það snerti og það, er hæstv. forsrh. (JM) sagði, sem snertir vantraust í sambandi við þessa till.
Hæstv. atvrh. (MG) vildi telja till. vantraustsyfirlýsingu. Bygði hann þar algerlega á orðum hv. 2. þm. Reykv. (JBald). En það er alveg rangur grundvöllur, því að sá hv. þm. (JBald) er ekkert við till. riðinn. Jeg ber fram till. af hálfu Framsóknarflokksins, og eins og jeg hefi skýrt og oft tekið fram og sömuleiðis formaður flokksins, hv. þm. A.-Sk. (ÞorlJ, þá gengur okkur ekkert annað til en það að fá fullan sannleikann. Það, að hæstv. atvrh. (MG) kallar þetta vantraust, hlýtur því að koma af því einu, að hann sje sannfærður um, að full rannsókn á málinu hljóti að leiða eitthvað í ljós, sem geri óhjákvæmilegt, að borið sje fram vantraust á hæstv. stjórn.
Svo var það eitt atriði, sem jeg skal rjett minnast á, þó að það komi örlítið inn á málið. Hæstv. atvrh. (MG) vjek því til mín, að ekki væri meira, þó að hann drykki kaffi í Krossanesi, en ef hann kæmi til að líta á mjólkurmálin í Laufási og drykki kaffi þar. Jeg verð nú að segja, að mjer finst töluverður munur á þessu tvennu. Og jeg get ekki neitað því, að mjer finst í meira lagi óviðkunnanlegt, að ráðherra og bæjarfógeti setjist að sumbli hjá manni, sem notað hefir í svo stórum stíl röng mæliker, sem gert hefir verið í Krossanesi.
Hæstv atvrh. (MG) kvartar undan því, að við heimtuðum ákveðnar upplýsingar, og hann sagði ennfremur orðrjett, að hann vildi „gefa sínum fylgismönnum skýrslu, sem þeir tækju gilda“. Þetta er það alvarlegasta, sem enn er komið fram í málinu. Jeg öfunda ekki hæstv. atvrh. af því að standa þannig frammi fyrir þingi og þjóð. Þetta er bein yfirlýsing þess, að stjórnin skoðar sig ekki vera fyrir landið alt, heldur aðeins fyrir ákveðinn flokk. Hún þykist ekki þurfa að standa þinginu reikningsskap á gerðum sínum. Hún er eingöngu flokksstjórn, og hana varðar ekkert um annað en íhaldið. Þetta þykir mjer mjög alvarleg kenning. Þetta er að taka sjer einræði, að fela gerðir stjórnarinnar fyrir minni hlutanum. Jeg öfunda ekki landsstjórnina af þessari aðstöðu. Við andstæðingar stjórnarinnar og alþjóð fáum ekki að heyra annað en þessa ófullkomnu skýrslu. Það getur verið, að með aðstoð eins utanflokksmanns takist að hefta þessa rannsókn í bili, en ekki til eilífðar. Jeg leyfi mjer að taka mjer í munn orð, sem fræg eru orðin um land alt: „Guði sje lof, að til er hæstirjettur!“ Guði sje lof, að til er æðri rjettur en þessi þingdeild. Guði sje lof, að ekki er langt þangað til þjóðin fær að kveða upp dóm yfir þeirri stjórn, sem svona fer að ráði sínu. (HK: Okkur er boðið að leggja ekki guðs nafn við hjegóma). Þetta er ekki hjegómi, hvort þannig eigi að neita kjörnum fulltrúum þjóðarinnar að rannsaka gerðir landsstjórnarinnar.
Jeg skal víkja aftur að Noregi. Skamt er á að minnast feluleikinn, sem íhaldsstjórnin þar ljek, þó ekki sje hjer um jafnstórfelt mál að ræða. Forsætisráðherra Íhaldsins norska ábyrgist 15 milj. kr. lán fyrir banka einn án þess að þingið vissi. Þegar bankinn bað um meira lán, var þingið leynt þessari ábyrgð. En þegar þetta komst upp, varð sá gustur um landið, að ekki er viðlit, að íhaldsstjórnin taki þar við völdum aftur.
Jeg er ekki að segja, að hjer sje svona stórfenglegt mál á ferðinni. Jeg veit ekkert um það með vissu. En ef hjer er ekkert að fela, því má þá ekki fara þessa tryggilegu leið, að athuga málið.
Þá skal jeg víkja örfáum orðum til hæstv. forsrh (JM) og að dagskrá hv. þm. Dala. (BJ).
Hæstv. forsrh. sagði snemma í dag, að hann skoðaði fram komið af síðari tölu minni, að hjer væri um vantraust á stjórnina að ræða. Jeg held, að mjög erfitt hafi verið að fá þetta út úr orðum mínum. Jeg sagði eitthvað á þá leið, að þó jeg vildi ekki tala nú um einstök atriði málsins, heldur láta nefnd rannsaka það, þá mundi tækifæri gefast síðar, ef stjórnin neitaði rannsókn, annaðhvort á eldhúsdaginn eða ef vantraust kæmi fram. Jeg lýsi því yfir, eins og áður, að það er enginn fótur fyrir því, að þessa tillögu eigi að skoða sem vantraust. Því hefir formaður Framsóknarflokksins (ÞorlJ) einnig lýst yfir. Fyrir okkur vakir ekki annað en það, að málið sje tekið til rólegrar yfirvegunar í nefnd.
Hv. þm. Dala (BJ) hefir borið fram till. um rökstudda dagskrá. Að þó nokkru leyti fer þessi tillaga í sömu átt og mín. Þó er nokkur munur á, og er það aðallega tvent. Dagskráin gerir ráð fyrir því, að stjórnin láti rannsókn fara fram á sínum eigin gerðum. Við viljum, að þingið láti rannsóknina fara fram. Og er þar um mikinn mun að ræða. Það getur þó verið, að jeg hefði getað samþykt þessa dagskrá, ef hún hefði komið fram áður en stjórnin neitaði, að þingið fengi að rannsaka málið. En þegar hæstv. landsstjórn hefir lýst því yfir, að hún neiti þinginu um rannsókn, þá er rjett að halda fram þeirri kröfu, að málið sje athugað bæði af fylgismönnum og andstæðingum stjórnarinnar. Hvað er hjer á bak við, þegar stjórnin neitar þinginu um að rannsaka þetta, en vill sjálf skipa þá menn, sem rannsaka eiga? Hinsvegar gerir dagskráin ráð fyrir rannsókn því aðeins, að einhver, sem orðið hefir fyrir rangindum, óski þess. Jeg held því fram, að landsstjórnin eigi að vera skjöldur og skjól þeirra, sem órjetti eru beittir. Ef hjer er ástæða til málshöfðunar, þá á stjórnin sannarlega að eiga frumkvæðið.
Úr því sem komið er treysti jeg mjer ekki að greiða atkvæði þessari rökstuddu dagskrá. Jeg hefði kannske getað það, ef hún hefði komið fyr. Hjer eftir óska jeg eindregið atkvæðagreiðslu um það, hvort Alþingi megi kynna sjer málið, án nokkurs fyrirframdóms. Jeg hefi tekið það fram áður, að í þessu felst ekkert vantraust á hæstv. stjórn. En ef hún og flokkur hennar neitar tillögu minni og samþykkir dagskrána, hvers vegna gerir hún það? Er það af því, að hún treysti sjer ekki að leggja málið óskorað í dóm Alþingis? Jeg fullyrði ekkert um það, aðeins spyr.
Jeg býst ekki við að þurfa að taka til máls aftur, enda hefi jeg nú talað þrisvar sinnum. Jeg hefi sett fram skýrt og ljóst, hvað fyrir okkur vakir. Vona jeg, að málið geti orðið útkljáð fljótt.