21.03.1925
Neðri deild: 39. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 395 í D-deild Alþingistíðinda. (3245)
98. mál, Krossanesmálið
Atvinnumálaráðherra (MG):
Jeg fer nú að verða leiður á þessum umræðum og skal verða stuttorður. Hv. Þm. Str. (TrÞ) byrjaði á því, að jeg hefði fært úr lagi orð sín og að verra væri að eiga við mig en hæstv. fjrh. (JÞ). Hann nefndi þó ekki nema eitt atriði, sem jeg hefði farið illa með. Jeg tek því þetta sem „kompliment“, af því jeg veit, að örðugt þykir að lenda í deilu við hæstv. fjrh. Ef jeg er verri viðfangs, má búast við, að jeg sje töluvert snarpur. Hv. þm. ámælti mjer fyrir það, að jeg hefði talað heilan klukkutíma um málið, en aðeins 5 mínútur um tillöguna. Jeg leit svo á, að hann vildi fá skýrslu um málið, og hana hefi jeg gefið, en nú sje jeg, að það var ekki skýrsla, sem hann óskaði, heldur aðeins rannsókn á stjórnina.
Þá var hv. þm. að tala um þessa framrjettu hönd. En þetta þýðir ekkert annað en það, að hann vill fá rannsóknarnefnd á stjórnina. Aðra rannsókn er yfirleitt ekki hægt að gera. Ef hann óskar að fá upplýsingar úr skjölum, sem til eru um málið í stjórnarráðinu, þá er ekkert því til fyrirstöðu. Jeg undirskrifa þau orð hæstv. forsrh., að formönnum flokkanna t. d. er guðvelkomið að sjá þessi skjöl. Þar er ekkert, sem þarf að dylja. En hv. þm. Str. þrástagast á því, að eitthvað hljóti það að vera, sem stjórnin vilji dylja, úr því að hún sje mótfallin rannsókn. Sjer þá ekki hv. þm., hve mikill munur er á því að heimta rannsókn og hinu, að fá að athuga skjöl með góðu. Nei, auðvitað var kosið að fara þessa leið, til þess að geta sagt á eftir: Sjáið þið til. Rannsókn hefir verið fyrirskipuð. Eitthvað hlýtur að hafa verið athugavert. Jeg spyr: Hvers vegna hefir hv. þm. ekki farið upp í stjórnarráð og beðið um að fá skjölin lánuð? (TrÞ: Jeg hefi verið að bíða í mánuð). Hann átti að biðja um þau skjöl, sem hann óskaði að sjá. Ekki get jeg vitað fyrirfram, hvaða skjöl hv. þm. Str. (TrÞ) langar til að sjá. Það er ómögulegt fyrir mig að standa á pinnum við hvern einstakan þingmann og bjóða skjöl að láni. Fyrst hv. þm. fór ekki þessa leið, sjest, hver tilgangurinn hefir verið. Mjer er óskiljanlegt, hvernig hv. þm. Str. getur dottið í hug, að þetta mál sje utanríkismál. Hann fóðrar það með því, að jeg og fleiri hafi verið óvirtir í norskum blöðum. Ekki get jeg sjeð, hvernig hægt er að telja það til utanríkismála. (TrÞ: Hvers vegna var skýrsla gefin utanríkisráðherranum norska?). Jeg get svarað hv. þm. Str. með sömu spurningunni. Hann vissi ekkert um þessa skýrslu í gær. Hvað vill hann þá fara að tala um hana nú?
Þá er þessi Stangeland, sem á að vera þessi einstaki Íslandsvinur, að hann vill enga misklíð milli landanna og vill því láta skipa rannsóknarnefnd til þess að halda friði (!!!).
Annars er rjett að geta þess, að eftir' því, sem mjer er frá skýrt, er það svo um Stangeland þennan, að hann gerði samning við Krossanesverksmiðjuna um að selja henni alla síld sína í fyrra sumar, en þegar síldin síðar hækkaði í verði, svo að miklu munaði, rauf hann samninginn, og til þess svo að komast hjá skaðabótum fyrir samningsrof er hann fremstur í flokki með að reyna að sverta framkvæmdarstjórann í Krossanesi fyrir, að hann hafi notað of stór síldarmál. Stangeland þessi hefir aldrei talað við mig orð um þessi mál og hefir yfirleitt ekkert aðhafst nema að rægja í blöðum. En þeim herra trúi jeg ekki betur en framkvæmdarstjóranum.
Þá kem jeg að kaffinu. Hv. þm. Str. hefir ekkert við það að athuga, þótt jeg drekki kaffi hjá honum í Laufási, ef jeg skoði mjólkurmálin hjá honum, en að jeg drekki kaffi hjá norskum manni, er ófyrirgefanlegt. Mjer er ekki ljós munurinn á þessu, nema ef kannske gæti verið munur á kaffinu.
Áður hefi jeg svarað því, sem hann sagði um, að engir fengju að sjá skjölin, aðrir en fylgismenn stjórnarinnar. Eins og jeg hefi margtekið fram, er bæði honum og öðrum velkomið að sjá þau; og þetta sýnir, að ekkert er að dylja, en hv. þm. (TrÞ) vill fá rannsókn á stjórnina til þess að gera hana tortryggilega.
Þá fór hv. þm. Str. að bera saman okkur og Berge, þótt hann segist reyndar gera ráð fyrir, að hjer sje ekki um neitt eins stórfelt að ræða og þar var. Þarna sjer maður úlfinn gægjast fram. Það er grunur hv. þm. Str., að hjer þurfi að leyna einhverju. Hann er svo ósköp sakleysislegur, meðan hann er að fá tillöguna í gegn, en svo kastar hann sauðargærunni. Þetta er það, sem hæstv. forsrh. (JM) hefir sýnt vel og veldur því, að stjórnin getur ekki sætt sig við tillögu hv. þm. Str.