15.05.1925
Sameinað þing: 7. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 421 í D-deild Alþingistíðinda. (3259)

134. mál, póstmál í Vestur-Skaftafellssýslu

Atvinnumálaráðherra (MG):

Hv. 5. landsk. (JJ) vill ekki láta mig pexa við sig, enda er jeg ófáanlegur til að halda langa ræðu nú, vegna þeirra þm., sem eru að leggja af stað, og jeg er viss um, að þeir eru mjer allir þakklátir fyrir. En aftur á móti býst jeg ekki við, að það verði hv. 5. landsk. til neinna vinsælda, þó að hann reyni að teygja lopann. Jeg er viss um, að málið fær sömu úrslit, hvort sem hann veður elginn lengur eða skemur. En það er hann nú búinn að gera í nálega 100 daga, og væri fróðlegt að vita, hvað það kostar ríkissjóð. (JJ: En hvað segir hæstv. ráðh. um Krossanesmálið?). Mínar ræður eru miklu styttri en ræður hv. þm. (JJ), og auk þess hefi jeg ekki vakið máls á Krossanesmálinu. það hafa hv. þm. gert, en það, sem jeg hefi gert í því máli, er að fyrirbyggja, að svik geti orðið viðhöfð framvegis.

Hv. þm. (JJ) talaði um, að heimilt væri að endursenda ópöntuð blöð og tímarit frá brjefhirðingum. En þetta er vitanlega alrangt hjá hv. þm. (JJ). Hver sá, sem sendir með pósti og borgar undir sendinguna, á heimtingu á, að hún fari þangað, sem henni er ætlað að fara, og hver, sem grípur inn í það, gerir sig sekan um óheimilt verk.

Annars hefir hv. 5. landsk. (JJ) talað mest um brjefhirðinguna á þessum stað, en mjer skilst tillaga hans ganga út á aukapósta. Hann hefir, eins og endranær, talað um alt annað en það, sem fyrir liggur. Það er alveg rjett hjá mjer, að þetta mál heyrir ekki undir þingið. En ef háttv. þm. vill koma með frv. um það, þá er það náttúrlega fær leið. Slíkt frv. mundi síst verða vitlausara en mörg önnur frv., sem hann hefir komið fram með, því að eins og kunnugt er, er hann meistari í því að koma fram með ómöguleg frv. (JJ: Vill hæstv. ráðh. nefna eitthvað?). Þau eru geysimörg. Jeg get t. d. nefnt frv. um að gefa þeim, sem búnir væru að niðurníða jarðir sínar, peninga, sem hv. þm. (JJ) kom fram með í vetur, og enginn vildi líta við.

Hv. 5. landsk. (JJ) talaði um ranglæti af hálfu aðalpóstmeistara, en hann hefir ekki getað fundið orðum sínum stað. Það heyrir undir aðalpóstmeistara að ákveða, hvernig aukapóstar eigi að ganga.

það getur verið, að brjefhirðingarmaðurinn á Kirkjubæjarklaustri hafi gefið hv. 5. landsk. (JJ) umboð til þess að segja, að hann mundi ekki kæra til mín. Jeg skal spyrja hann að því við tækifæri.

Annars er ógerningur að svara öllum vaðli hv. þm. (JJ), enda óþarft, og mest af því, sem hann sagði, eru gamlar Gróusögur, tilbúnar í stóriðjuverksmiðju hans í þeirri grein.