13.05.1925
Neðri deild: 79. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 428 í D-deild Alþingistíðinda. (3266)
135. mál, löggilding mælitækja og vogaráhalda
Flm. (Jón Baldvinsson):
Á Alþingi 1923 kom fram frv. um að breyta þágildandi lögum um löggilding mælitækja og vogaráhalda, en það náði ekki fram að ganga. En á síðasta þingi, eða 1924, voru sett lög, sem breyttu hinu fyrra fyrirkomulagi í þá átt, að nokkrir lögreglustjórar skyldu hafa löggildinigu þessara tækja á hendi. Löggildingarstofan, sem starfað hafði í nokkur ár, átti að hætta eftirliti sínu frá áramótum og það að flytjast í hendur lögreglustjóra á nokkrum stöðum á landinu.
Þegar frv. kom fram 1923, var jeg mjög á móti því; jeg áleit, að þetta fyrirkomulag væri ekki eins tryggilegt og að hafa löggildingarstofuna. Sömuleiðis var jeg á móti frv. í fyrra. Jeg var þá í allshn. og lagði einn nefndarmanna á móti því, að frv. yrði samþ.
Á Alþingi 1923 var lögð fram hjer á Alþingi skýrsla frá löggildingarstofunni um starfsemi hennar og athugun þá, sem hún hafði gert viðvíkjandi mæli og vogaráhöldum hjer á landi. Þar er lýst, hvernig þessi mælitæki hafa reynst við eftirlit og athugun löggildingarstofunnar, og niðurstaðan var sú, að mikill hluti þeirra þurfti viðgerðar við eða voru ónýt. Það var því bersýnilegt, að fullkomin þörf var á þessari starfsemi löggildingarstofunnar. Enda var svo mikið í húfi, að vogar- og mælitæki reyndust rjett, að hlýða þótti að setja löggildingarstofu á stofn, eins og í öðrum löndum. Það var ekki fyrir það, að mönnum þætti starfsemi löggildingarstofunnar hafa í för með sjer mikil aukin útgjöld fyrir ríkissjóð, að hún var lögð niður, heldur þótti mönnum sá kostnaður of mikill, sem tekinn var fyrir að löggilda tækin og fyrir viðgerðir og lagfæringar á þeim. Þetta hafa menn fundið því til foráttu að hafa hjer löggildingarstofu, en hinsvegar virðast menn ekki leggja mikið upp úr þeirri tryggingu, sem hægt var að fá fyrir því, að menn fengju rjett úti látið það, sem þeir keyptu eða seldu. Mjer finst ekki hafa verið tekið nægilegt tillit til þessa og tel því illa farið, að stofnunin skyldi vera lögð niður. Annars get jeg bent á tvent, sem ekki er minna virði en tryggingin fyrir neytendur. Það er ekki lítils vert, að þau tæki, sem vega á með útflutningsvörur, sjeu góð og nákvæm, og sama er að segja um vörur, sem fluttar eru inn í landið og vegnar eru upp úr skipum, t. d. kol og salt. Það hefir komið í ljós við athugun, að hin stóra bryggjuvog í Hafnarfirði var mjög ónákvæm, og hún stóð lengi svo, að ekki mátti nota hana, og var það ekki gert fyr en krafa kom frá nokkrum kaupsýslumönnum í Hafnarfirði um, að hún væri sett í lag. Þessi vog vóg kol- og saltfarma úr skipum, og þegar munaði alt að 7% á voginni, sjá allir, hve miklar fjárhæðir hjer gat verið að ræða um.
Það er ekki hægt að ætlast til, að lögreglustjórar hafi þekkingu til að löggilda eða ganga úr skugga um, að mæli- og vogartæki sjeu rjett. Og það getur verið erfiðleikum bundið fyrir þá að fá menn, sem þá þekkingu hafa til að bera, sem þarf til þess að geta haft eftirlit með þessu, svo að í góðu lagi sje.
Viðvíkjandi þeirri skýrslu, sem lá fyrir 1923, hefi jeg heyrt þm. láta í ljós, að þeir hefðu tæplega samþykt afnám löggildingarstofunnar, ef þeir hefðu þekt ástandið í landinu, eins og því var lýst í þeirri skýrslu, eftir að löggildingarstofan var farin að starfa. En þetta er orðið að lögum og ekki hægt að breyta því á þessu þingi í lagaformi.
Jeg skal geta þess, að í vetur kom fram frv. um að færa alt í sama horfið aftur, og var málinu vísað til nefndar hjer, en ekkert nál. kom um það.
Tillagan sjálf og greinargerð hennar fer fram á að heimila stjórninni að ráða 1–2 menn til aðstoðar lögreglustjórum við löggildingu mæli- og vogartækja, og er búist við, að ríkissjóður geti fengið til þess þá menn, sem starfað hafa hjá löggildingarstofunni.
Í öðru lagi liggur við borð, að ríkissjóður verði að kaupa löggildingartæki handa lögreglustjórum. Það mundi kosta 12–15 þúsund krónur eða meira, en ríkissjóður á sjálfur tæki, sem hafa verið hjá löggildingarstofunni. En þegar áhöldin þurfa að vera á 4–5 stöðum á landinu og ekki er lengur skylda að senda hingað lóð og vogir til aðgerðar, verður að leggja í þann kostnað að kaupa nauðsynleg áhöld handa lögreglustjórum. Þess vegna er í seinni málsgreininni skorað á stjórnina að reyna að haga löggildingunni þannig, að sem minst þurfi að kaupa af áhöldum. Mjer hefir skilist það aðeins vera tímaspurning, hvenær löggildingarstofan kemur aftur og tekur við sínu fyrra starfi.
Þetta er það, sem vakir fyrir mjer og hv. þm. Dala. (BJ), að það verði að minsta kosti tryggilegra eftirlit en er eftir núgildandi lögum.
Þetta er að vísu nokkur kostnaður fyrir ríkissjóð, en það má ekki horfa í það, þegar athugað er, hversu mikils virði það er, að mælitæki og vogaráhöld öll sjeu í góðu lagi í landinu og tryggi menn í viðskiftum gegn því að fá of lítið fyrir peninga sína. Nákvæmni í þessum efnum er einnig nauðsynleg að því er snertir allar inn- og útfluttar vörur. Jeg vænti þess því, að tillagan verði samþykt í báðum deildum, þó að orðið sje áliðið þingtímans.