13.05.1925
Neðri deild: 79. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 431 í D-deild Alþingistíðinda. (3267)

135. mál, löggilding mælitækja og vogaráhalda

Atvinnumálaráðherra (MG):

Jeg er hlyntur þessari tillögu og tel rétt að ráða einn mann til þess að fara um og athuga mælitæki og vogaráhöld. Jeg held, að hægt sje að komast af með einn mann, þar sem löggilding mælitækja og vogaráhalda hefir farið fram fyrir skömmum tíma. Jeg vil geta þess, að það er auðsætt, að þó að maður verði ráðinn, kostar það ekki alt hans kaup, því að lögreglustjórar verða að borga fyrir eftirlitið.

Jeg hefi hugsað mjer þetta þannig, að maðurinn færi ferðir, einkum á sumrin, til eftirlits, en yfirumsjón getur forstöðumaður veðurstofunnar haft, án þess að það kosti landið neitt, því að hann hefir gamalt fyrirheit um sömu laun, þó að hann gegni ekki nema öðru hvoru starfinu.

Um þessi nýju áhöld, sem getið er um í 2. gr., er það að segja, að tilgangurinn er, að stjórnin kaupi inn fyrir alla lögreglustjóra, og er seinni hlutinn því bygður á misskilningi, en það skiftir ekki miklu máli. Þetta er gert vegna þess, að búist er við, að á þann hátt verði hægt að ná betri kjörum en ella, því að sá maður, sem mundi sjá um innkaupin fyrir stjórnina, er sjerstaklega kunnugur verslun með slíka hluti.