13.05.1925
Neðri deild: 79. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 461 í D-deild Alþingistíðinda. (3276)

137. mál, vantraust á núverandi landsstjórn

Forsætisráðherra (JM):

Jeg get svarað ræðu hv. flm. (JBald) í stuttu máli. Jeg þarf aðeins að leiðrjetta ofurlítið atriði, því að í raun og veru gaf ræða hans mjer annars ekki tilefni til að segja neitt verulegt.

Hann sagði, að jeg vildi gera meira úr efri deild en neðri deild. Þetta er ekki rjett. Jeg sagði ekkert í þá átt, heldur lít jeg svo á, að um afstöðu til einstaks ráðherra eða ráðuneytisins í heild sje rjettur hvers eins þingmanns í hvorri deild jafngóður og gildur. Það eimir eftir af gömlum skoðunum hjá hv. þm. (JBald), því að öðruvísi var litið á þetta, þegar þingmenn efri deildar margir voru konungkjörnir. En nú er ekki því til að dreifa.

Það er ekki rjett, sem hv. þm. sagði, að stjórnin hefði ekki viljað, að þingið athugaði Krossanesmálið; þvert á móti margbauð hún að lána öll skjöl, sem fyrir lágu í málinu. Jeg veit ekki, hvort nokkur bar sig eftir því, en svo mikið er víst, að það var boðið, og engu var leynt.

Hv. þm. (JBald) komst í mótsögn við sjálfan sig, þegar hann sagði, að ráðuneytið sæti í sjálfs sín trausti.

Jeg hefi ekki sagt annað um varalögregluna en svo oft áður, að jeg hjeldi ekki fast við frv., en væri fús að taka breytingum á því, ef til bóta væru. Jeg vildi aðeins aukning lögreglu á svipaðan hátt og farið er fram á í frv. Jeg hefi ekki horfið frá því.

Jeg ætla ekki að fara langt út í Krossanesmálið. Jeg hefi sagt frá því, hvernig málið kom til hæstv. atvrh. og af hverjum ástæðum jeg taldi mig ekki skifta það mál. Engin kæra hefir komið til mín.

Hv. þm. þurfti ekki að fara að tala aftur um guðlastsmálið. Um slík mál verður hver maður að hafa leyfi til að fylgja sinni skoðun, hvert sem almenningsálitið kann að vera. Jeg segi fyrir mig, að ef það skyldi koma fyrir mig, að jeg ætti að starfa að endurskoðun hegningarlaganna, mundi jeg hiklaust leggja til, að ákvæðið um hegning fyrir guðlast hjeldist. Hv. þm. sagði, að jeg gerði lítið úr almenningsálitinu, af því að það væri mjer ekki hliðholt. Þetta er nú ekki rjett, og satt að segja hefir það, sem jeg hefi orðið var við hingað til í þessu efni, ekki gefið mjer ástæðu til að halda, að almenningsálitið væri mjer mótdrægt.

Hv. þm. sagði að mínar afsakanir hefðu verið smáar. Það er ekki alveg rjett. Þær voru nefnilega engar. Jeg hafði ekkert að afsaka.