13.05.1925
Neðri deild: 79. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 462 í D-deild Alþingistíðinda. (3277)
137. mál, vantraust á núverandi landsstjórn
Tryggvi Þórhallsson:
Mjer hefir verið falið á hendur að gera grein fyrir atkvæðagreiðslu okkar Framsóknarflokksmanna þessarar hv. deildar um þessa þáltill. Jeg hefði gjarnan viljað hafa haft tíma til þess í næði að búa mig undir að gera grein fyrir afstöðu okkar til hæstv. stjórnar, en síðan þessi till. kom fram, og reyndar um langan tíma áður, hafa vinnubrögðin hjer á hv. Alþingi ekki verið í því sniði, sem þeir krefjast að sje, sem heimta átta stunda vinnudag. Það hefir aldrei verið 8 stunda vinnudagur, oftast 10–14 og jafnvel 16 stunda vinna, svo að til þess að búa sig undir sjerstök störf hefir ekki unnist tími.
Það munu margir hafa búist við, að við Framsóknarmenn, sem erum fjölmennastir af andstæðingum hæstv. stjórnar, myndum bera fram vantraust á hendur henni. Jeg játa það persónulega fyrir mig, að jeg gerði hiklaust ráð fyrir því fram eftir þinginu, að jeg mundi gera það áður en þessu þingi yrði slitið. Jeg var svona bjartsýnn, að jeg bjóst við, að svo gæti ekki farið, að Ísland yrði að sitja með þessa stjórn eitt árið til. Jeg vildi vona, að að svo miklu leyti, sem breytingar hafa orðið síðan í fyrra, hefðu þær orðið til bóta. Nú sje jeg, að þær hafa ekki orðið til bóta, heldur til hins lakara, sem hefir sýnt sig meðal annars í úrslitum mála hjer á þingi. Og ástæðan til þess, að við Framsóknarflokksmenn höfum ekki borið fram vantraustyfirlýsingu, er því einmitt sú, að við, að öllu athuguðu, teljum það víst, að hún mundi ekki ná fram að ganga.
Það kom fram við umr. Krossanesmálsins, að hæstv. stjórn gerði úrslit þess máls að fráfararatriði. Kom það þá í ljós, að það var ekki meiri hluti þessarar hv. deildar, sem vildi láta stjórnina fara frá á þeim grundvelli. Og þó hv. þm. Dala. (BJ) styddi stjórnarflokkinn og rjeði þannig úrslitum um Krossanesmálið, þá hefir hann þó oft lýst því yfir í ræðum sínum, að hann viðurkendi sig ekki styðja stjórnina. Samt hefir hann stutt hana í verkinu, og hefir það skýrlega komið fram í þeim málum, sem aðallega hafa orðið átök um hjer á þingi og hafa máli skift fyrir hana. Framsóknarmönnum þótti því fyrirsjáanlegt, að vantraustsyfirlýsing mundi ekki ganga fram, og þess vegna eigum við engan þátt í því, að hún er fram komin. Hefðum við ætlað að bera hana fram, hefðum við gert það fyr, því við vildum ekki í þinglokin valda töfum með vantraustsyfirlýsingu, sem við gerðum ráð fyrir að hefði engan árangur í för með sjer, þótt okkur hinsvegar sje það ljóst, að hún hlyti að hafa mjög góðar afleiðingar í för með sjer fyrir þjóðina, ef hún næði fram að ganga.
Þó jeg lýsi þannig greinilega því, sem fyrir okkur vakir um þetta, og því, sem veldur því, að við berum ekki fram vantraust, þá vil jeg alls ekki kasta steini að hv. 2. þm. Reykv. (JBald) fyrir að flytja slíka till. Í fyrsta lagi hefir hver þingmaður leyfi til að gera slíkt, og hann hefir ef til vill ekki verið eins viss um það eins og við, að þetta yrði árangurslaust. Hann gæti hafa trúað meira á orð hv. þm. Dala., en við Framsóknarmenn höfum trúað meira á athafnirnar. En nú er þessi vantraustsyfirlýsing komin fram, og um hana á að greiða atkv. Úr því hún er komin fram, þá get jeg lýst því yfir af hálfu Framsóknarmanna, að við teljum það skyldu okkar að greiða atkv. með henni Úr því til þessa er stofnað, þá getur engum manni dulist það, sem eitthvað hefir fylgst með gangi mála á þinginu, að það er beint áframhald af þeirri baráttu, sem háð hefir verið allan þingtímann, að við hljótum að greiða atkv. með vantraustsyfirlýsingu á stjórnina, hvaðan sem hún kemur.
Í raun og veru gæti jeg lokið hjer máli mínu, með skírskotun til þess, sem gerst hefir á þessu langa þingi, en jeg bæti nokkrum orðum við, aðeins til að rökstyðja það í stórum dráttum, hvers vegna við teljum skyldu okkar að láta atkv. okkar falla á þennan veg.
Það verða aðallega tvö atriði, sem jeg nefni; og sjerstaklega er það vegna hins fyrra atriðis, sem jeg bæti fáeinum orðum við, af því það hefir lítið komið fram í þinginu áður.
Jeg þarf þá fyrst að minnast á það, að þegar íhaldsstjórnin settist að völdum í fyrra, var hún ekki meiri hluta stjórn. Síðan hafa henni ekki bæst neinir fylgismenn, svo að kunnugt sje. Hæstv. stjórn er minni hluta stjórn, og jeg man ekki betur en hæstv. atvrh. (MG) hafi játað það, og hún styðst ekki við flokk, heldur við stuðning einstakra manna. Hún verður að styðjast við „kaupamenn“ — jeg get haft það í gæsalöppum, því jeg segi það ekki í slæmri merkingu.
Jeg er sannfærður um, að það, að stjórnin situr á svo óstöðugum grundvelli, er mjög slæmt fyrir það land, sem hún á að stjórna. Afleiðingarnar af því hljóta að verða mjög alvarlegar. Jeg ætla aðeins í þessu sambandi að minna á það, að það er ákaflega hætt við, að undir þessum kringumstæðum, þegar stjórnin verður að styðjast við svona stuðning, bæði við allsundurleitan flokk og svo aðra utanaðkomandi, þá er ósköp hætt við, að stjórnin verði, til þess að tryggja liðið, að veita þess um stuðningsmönnum sínum þessi og önnur fríðindi eða hygla þeim á einhvern hátt til þess að fá þá til að styðja sig áfram.
Mjer dylst það ekki, og það er mín persónulega sannfæring, að eitt frv., sem borið hefir verið fram og samþ., frv. um að stofna nýtt embætti við háskólann, er gert til þess að þóknast einmitt þeim manni í þessari hv. deild, utan Íhaldsflokksins, sem hefir stutt hæstv. stjórn til þessa. Það er mín persónulega skoðun sömuleiðis, að frv. um það, að kvennaskólinn hjer í Reykjavík yrði gerður að ríkisskóla, sje gert til þess að tryggja fylgi eins flokksmanns Íhaldsflokksins í Ed. Það hefi jeg og fyrir satt, að auk þessa hafi hæstv. stjórn gefið töluvert mikið undir fótinn um það, að stofnað verði suður í Kaupmannahöfn ekki síðar en á nsta ári embætti, sem mjög hefir verið deilt um hjer á landi, hvort nauðsynlegt væri eða ekki, einmitt til þess að þóknast stuðningsmanni, sem stjórnin á mikið undir. Jeg segi þetta sem mína persónulegu skoðun. En þetta út af fyrir sig álít jeg mjög alvarlegt, þegar það er skoðað í því ljósi, að bði þessi embætti, sendiherraembættið og dócentsembættið, voru feld með mjög eindregnum vilja þingsins í fyrra. Fyrir fjárhagsafkomu landsins er það mjög hættulegt, að stjórn sitji við slíka aðstöðu sem þessi, og fyrir alla heilbrigði í stjórnmálalífi landsins er það mjög háskalegt.
Jeg nefni annað í þessu sambandi. Hæstv. stjóra hefir lýst því yfir, að hún vilji fyrst og fremst spara, og t. d. borga lausaskuldir ríkissjóðs á fáum áram. En þessi sama stjórn, sem þetta segir, hún á tilveru sína undir þeim þingmanni í þessari hv. deild, sem áreiðanlega hefir minstan áhuga á sparnaði allra hv. þm., sem er hv. þm. Dala. (BJ). Hann er sá eini hv. þm. í þessari deild, sem talað hefir mjög harðlega á móti því að borga lausaskuldirnar upp á 3 árum. Þetta finst mjer hljóta að hafa miklar afleiðingar í því efni, hvernig hæstv. stjórn standi við þetta loforð á sinni stefnuskrá. Jeg segi það í framhaldi af þessu, að þá miklu hækkun, sem orðið hefir á fjárlögunum að þessu sinni, rita jeg fyrst og fremst á þennan reikning. Þingið á að vera þannig saman sett, að stjórnin og meiri hluti þm., sem hana styður, beri fyrst og fremst ábyrgð á því, að fjárlögin sjeu forsvaranlega afgreidd. En sá meiri hluti, sem nú stendur að stjórninni, er svo skiftur, sem verða má, einmitt um þetta atriði. Þess vegna er það mín persónulega sannfæring, að stimpillinn, sem nú er á fjárlögunum, sje fyrst og fremst stimpill þess manns, sem ræður því, að sú stjórn situr við völd, sem verður að setja stimpil hv. þm. Dala. (BJ) á fjárlögin. Þess vegna er það, að þótt orðin á stefnuskrá hæstv. stjórnar sjeu þau að spara og borga lausar skuldir, þá verður í reyndinni útkoman öll önnur. Þetta var annað almenna atriðið, sem jeg vildi víkja að. Jeg er sannfærður um það og við Framsóknarmenn, að af þessu ástandi sem er getur ekki stafað annað en vandræði fyrir landið, og við álítum, að undir svona kringumstæðum ætti stjórnin í raun og veru að eiga sjálf frumkvæðið að því að fá þetta lagfært. Og þetta getur ekki orðið lagfært nema með því eina móti að stofna til nýrra kosninga, til þess að fá úrskurð þjóðarinnar um þetta. Það væri tilraun til þess að fá sterkari stjórn, sem hefði svo öflugan meiri hl., að hún væri ekki háð hinum og öðrum um það, hvernig hún stjórnaði landinu.
Út frá þessu sjónarmiði greiðum við Framsóknarmenn atkv. með vantrausti, af því við teljum, að grundvöllurinn, sem stjórnin hvílir á, sje ekki sá, sem hann á að vera. Við gerum það ekki með það fyrir augum, að við ættum í staðinn að taka við stjórn, því við játum það hispurslaust, að við getum ekki bætt úr að þessu leyti. Eins og sakir standa nú, getum við ekki stofnað stjórn með tryggara undir fæti en þessi hefir. Við gerum það með þeirri hugsun, að fram ættu að fara nýjar kosningar, þar sem það sýndi sig, hvort þjóðin gæti ekki skapað ákveðnari flokk, til þess að fá heilbrigðara stjórnmálalíf, því eina ráðið til þess eru nýjar kosningar. Þó vantraustið yrði samþ., þá mundum við alls ekki krefjast þess, að stjórnin færi þegar frá og afhenti þeim flokki völdin, sem flest atkv. leggur til vantraustsins, heldur biði hún róleg meðan þjóðin væri að spurð.
Hitt atriðið, sem mjer bar sjerstaklega að gera grein fyrir, um það, hvers vegna við greiðum atkv. með vantrausti, er það, að hverju leyti við erum andstæðir stefnu hæstv. stjórnar, og í annan stað að hverju leyti við hefðum ástæðu til að ásaka hæstv. stjórn fyrir framkvæmdir hennar í einstökum atriðum. Um það gæti jeg talað í alla nótt, ef jeg vildi. En jeg tel óþarft að gera það, því á þessum 95 dögum, sem þingið hefir staðið, hefir afstaða okkar mjög greinilega komið fram, og má segja, að þingið frá upphafi og fram á þennan dag hafi í raun og veru verið ein samfeld vantraustsyfirlýsing frá okkur Framsóknarmönnum á hendur hæstv. stjórn. Að rekja það lið fyrir lið, hvers vegna við teljum núverandi stjórn óheppilega og óhæfa fyrir landið, ætla jeg ekki að gera nú. Það mun öll þingsagan upp kveða, og jeg legg það ekki á mig nje hv. áheyrendur nje prentarana að segja þá sögu.
Aðeins ætla jeg með fáum orðum að gefa dálitla mynd af því, hvernig jeg lít á hæstv. stjórn, og þá að ráðast á þar, sem jeg er í engum vafa, að garðurinn er hæstur, og snúa máli mínu þangað, sem engum dylst að aðalkrafturinn er í stjórninni, sem setur sinn svip á stjórnina, svo augljóst er, en það er hæstv. fjrh. (JÞ).
Jeg ætla í þessu sambandi aftur að víkja að því, hvernig þessi stjórn var stofnuð, og aðeins minna á það, að í upphafi var ekki til þess ætlast af Íhaldsflokknum, að sá yrði forsætisráðherra, sem varð. Það var tilætlunin, að hæstv. fjrh. yrði forsætisráðherra. Og jeg verð að segja, að það var vitanlega rjett á litið af Íhaldsflokknum, að það hefði farið best á því, að hann hefði orðið forsætisráðherra. Það hefir sýnt sig síðan. Þetta varð nú ekki, af því að Íhaldsflokkurinn var ekki einráður um það, hvernig hann skipaði þann sess; hann þurfti hjálpar utan að, þar sem sagt var, að annar skyldi verða forsætisráðherra. Að því leyti varð hæstv. fjrh. að láta í minni pokann, þegar stjórnin var skipuð, en hitt hefir ekki farið dult, að síðan hefir hann fullkomlega unnið það upp, og það er hæstv. fjrh., sem að öllu leyti hefir á þessu þingi verið forsætisráðherra, og jeg verð nærri því að segja dóms- og kirkjumálaráðherra og atvinnumálaráðherra í tilbót. (Fjrh. JÞ: þetta er oflof). Það var einu sinni sagt: Lofaðu svo einn, að þú lastir ekki annan; en því miður, um leið og jeg lofa hæstv. fjrh., þá lasta jeg aðra, og ef hæstv. fjrh. er ant um sína „kollega“, þá ætti hann frekar að beina því til mín að lasta þá ekki. Þess vegna er það, að jeg sný máli mínu eingöngu til hæstv. fjrh., þegar jeg vil stuttlega gera grein fyrir því, hvers vegna við erum óánægðir með stefnu stjórnarinnar, með því að það hefir sýnt sig svo skýrt sem orðið getur, að það er hæstv. fjrh., sem setur sinn stimpil á alla stefnu hennar. Það getur engum dulist lengur, hver stjórninni stjórnar og hver er stefnan. Það getur engum dulist, að stjórn þessi er ekki fyrst og fremst landsstjórn, heldur stjórn kaupmanna og ríkra manna í höfuðstaðnum. Það getur engum dulist, að það er hæstv. fjrh., sem er fulltrúi þeirra manna hjer í bænum og af þeirra háttu ræður stefnu stjórnarinnar. Jeg skal aðeins nefna örfá dæmi, sem sýna þetta mjög ljóslega. Fyrst má nefna það málið, sem mest hefir verið barist um, sem sje tóbakseinkasöluna. Þar var það ljóst, að við, sem henni fylgdum, gerðum það vegna þess, að við töldum það hentugri aðferð til að afla ríkissjóði tekna. Jeg segi ekki, að hæstv. fjrh. hafi látið sjer það um munn fara beinlínis, en hans hjartans meining mun án efa hafa verið á þessa leið: Þetta skal leggjast niður, af því að þessir stórn menn í bænum, sem jeg tel rjett og mjer skylt að styrkja, vilja hafa sína atvinnu af því að selja þessa vöru; það hlýtur að ráða.
Jeg get í þessu sambandi nefnt steinolíueinkasöluna, slík átök sem urðu um hana hjer fyrir skemstu. Þar var þetta ljós meining hæstv. ráðherra (JÞ), þótt jeg geri honum að vísu upp orðin: Þeir stóru geta fengið olíuna ódýra samt; þeir geta haft hag af að selja olíu; það gerir minna til, hvernig fer um smælingjana úti um landið.
Þá má nefna tekjuskattinn, málið, sem baráttan var hörðust um; þar barðist hæstv. fjrh. mjög ósleitilega fyrir sína stóru vini í borginni. En þar hefir flokkur hans sett „bremsu“ á hann í hv. Ed., svo að jeg noti orð hv. 2. þm. Reykv. (JBald).
Þá gæti jeg minst á varalögregluna, þar sem farið var fram á það af flokki manna hjer í bænum að veita pólitískri stjórn vald til þess að hafa hóp vopnaðra manna á að skipa, til þess að reka erindi þeirra. Þá mætti og minnast á skattastefnu stjórnarinnar, sem Framsóknarflokkurinn er að öllu leyti andstæður. Annars hefir kraftur hæstv. fjrh. lýst sjer sorglega og átakanlega hjer í þinginu. Hann hefir lýst sjer sorglega í áhrifum á afgreiðslu mála hjer, svo sem tóbakseinkasölunnar, og átakanlega í framkomu hans gagnvart meðstjórnanda sínum, hæstv. atvrh. Það er átakanlegt að sjá, hvernig hæstv. fjrh. taldi sjer skylt að koma fram gagnvart honum. Tóbakseinkasalan var aðaláhugamál hæstv. atvrh. hjer á þingi áður, og hann hafði lýst því yfir, að hver einasta von sín í því máli hefði ræst. En svo var mikill þunginn frá hæstv. fjrh., að hæstv. atvrh. mátti ekki einu sinni láta atkvæði sitt fylgja sannfæringu sinni í þessu máli. Það er mjög svo sorglegt fyrir Íhaldsflokkinn að þurfa að hafa mann í ráðherrasessi, sem er jafnsvínbeygður og hæstv. atvrh. er í þessu máli, sem og flestum öðrum, er hann hefir afskifti af.
Með skírskotun til viðureignar hjer á þinginu áður álít jeg óþarft að fara frekar út í einstök mál. Sjerstaklega er það óþarfi, þar sem telja má víst, að þessi vantraustsyfirlýsing nái ekki fram að ganga. Jeg býst því ekki við að tala frekar í þessu máli.