13.05.1925
Neðri deild: 79. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 472 í D-deild Alþingistíðinda. (3278)

137. mál, vantraust á núverandi landsstjórn

Fjármálaráðherra (JÞ):

Jeg verð að segja það, að hv. 2. þm. Reykv. hefir komið hjer fram í kvöld sem harla ljeleg húsmóðir. Eins og allir vita, hefir verið rætt hjer í 4 daga um hið svokallaða Krossanesmál, og verður ekki annað sagt en að þar hafi verið sami grauturinn velgdur upp dag eftir dag. Ennfremur var sami grauturinn á borð borinn á eldhúsdaginn, og nú í þinglokin kemur þessi hv. þm. ekki með neitt annað en þennan útþynta og upphitaða graut, ásamt moðvolgum vatnssopa sem útálát frá honum sjálfum. Jeg þykist því vita, að það sje sannmæli, er jeg fullyrði, að þessi hv. deild sje orðin langþreytt og margleið á slíkri matreiðslu.

Mjer finst nú eigi að síður rjett að gera matnum einhver skil, úr því hann er á borð borinn. Vil jeg þá fyrst benda á það, að viðvíkjandi Krossanesmálinu komu fram tvenn stórfeld ósannindi hjá hv. þm. Hið fyrra er, að núverandi stjórn hafi þar látið viðgangast stærri verslunarsvik en þekst hafi hjer áður. Sannleikurinn er nú sá, að þetta hefir viðgengist, ef um svik hefir verið að ræða, fram á tíð núverandi stjórnar, en hún tók í taumana og ljet rannsaka mælikerin og löggilda þau. Það virðist því ekki hægt að fara öfugar að sannleikanum en þetta. Hitt er annað, að stjórnin hafi neitað Alþingi um rannsókn á málinu. Allir vita, að þetta eru ósannindi. Stjórnin hefir boðið þingnefndum og einstökum þingmönnum frjálsan aðgang að öllum skjölum málsins.

Næst kom hv. þm. að guðlastsmálinu, og þar kveður nokkuð við annan tón. Hv. þm. hefir altaf heimtað sakamálsrannsókn gegn forstöðumanni Krossanesverksmiðjunnar, vegna þess, að hann hefir grun um, að einhverjir peningar kunni að hafa vilst í vasa hans, sem ekki hefðu átt þangað að fara. En hann ber stjórnina sökum fyrir það, að hún lögum samkvæmt hefir látið höfða mál á hendur þeim, er guðlastaði. Þar vill hann láta sakir niður falla. Þetta bendir til þess, að þessum hv. þm. sje ljúfara að þjóna Mammoni en guði.

Jeg þarf litlu að svara því, sem hann beindi til mín. Hann ljet í ljós óánægju sína yfir því, hvernig meiri hluti deildarinnar tók í frv., sem jeg bar fram. Honum hlýtur þó að vera ljóst, að það getur aldrei orðið tilefni til samþyktar vantrausts, sem meiri hlutinn hefir lýst velþóknun sinni á. Viðvíkjandi undirbúningi þessa máls fann þessi hv. þm. mjer það til foráttu, að ekki hefði verið lögð fram þegar í stað áætlun um áhrif frv. á tekjur ríkissjóðs á yfirstandandi ári. En hjer heimtar hann það, sem ómögulegt er. Hann veit, að tekjuskattur hlutafjelaganna síðustu tvö árin hefir verið sem næstur núlli, svo breyting á löggjöfinni honum viðvíkjandi gat ekki gert breyting á tekjum ríkissjóðs þau árin. En um skattinn 1924 varð ekki vitað, því að skattaframtalið var ekki komið, er frv. var lagt fram. En er framtalið var komið, var fyrst hægt að gera útreikninga, svo það hlaut því að verða þingnefndar að gera það. Jeg skal ekki fara frekar út í þetta mál, en aðeins geta þess, að þær tekjur, sem ríkissjóður hefði á yfirstandandi ári tapað á meðaltalsreglunni, hefði hann fengið upp bættar á tveimur árum.

Jeg er alveg hissa á, að hv. 2. þm. Reykv. (JBald), sem stendur fyrir stóru iðnaðarfyrirtæki og hlýtur því að bera nokkurt skyn á reikningsfærslu, skuli taka sjer í munn miljónarfjórðunginn, sem ríkissjóður ætti að tapa á niðurlagningu tóbakseinkasölunnar. Þessi miljónafjórðungur er nú orðinn landsfleygt hlátursefni og sprottinn af vanþekkingu þess þingmanns á reikningsfærslu, sem fyrstur sló þessari tölu fram. Það er margsannað, að ríkissjóður tapar engu á niðurlagningu tóbakseinkasölunnar, ef innflutningurinn vex um 5–6% eða hækkar um 1/6 hluta þess, sem hann hefir minkað síðan einkasalan komst á.

Þá kom hv. þm. að steinolíunni, og var auðfundið, að þar var komið að hjartanu. Jeg tel það nokkra vorkunn, þótt hann sje í sárum eftir ósigurinn í gær, en jeg sje enga ástæðu til þess að halda þeim umræðum áfram hjer. En það þarf furðumikla djörfung til þess að segja, að steinolíusamningurinn hafi verið hinum smærri notendum hagræði, eftir að búið er að sýna með skýrum tölum, að hinir smærri útgerðarmenn hafa orðið að skildinga saman í skatt til erlends fjelags á síðasta ári 300 þús. kr. Jeg verð að segja, að ef þetta er hagræði, þá hlýtur hv. þm. að þekkja til þess, að slíkir útgerðarmenn sjeu þungir á sjer af of miklum peningum í vösum sínum og hafi orðið fyrir pyngjuljetti vegna steinolíusamningsins. Öðruvísi er hann ekki hagræði fyrir þá.

Dóm hv. 2. þm. Reykv. um verkfræðistörf mín ætla jeg að hafa að engu. Met jeg þar meir dóm mikilsmetandi manna um þau, sem marka má af aðsókn og viðskiftum þeirra, meðan jeg fjekst við þá atvinnugrein. Annars finst mjer það harla ljelegt tal að blanda inn í þetta mál órökstuddum dylgjum um hæfileika manna til að reka iðn eða atvinnu. Hv. 2. þm. Reykv. gæti átt von á þessu sjálfur, ef andstæðingar hans væru jafnómerkilegir sem hann.

Þá mintist hv. þm. á mismuninn á afstöðu sinni og stjórnarinnar til sjómanna og verkamanna. Sagði hann, að stjórnin vildi nota auð þann, er sjómenn drægju úr djúpi hafsins, til þess að þrengja kjör þeirra. Bygði hann þetta á því, að stjórnin vildi ívilna útgerðarfjelögunum í óvenjulega harðri skattalöggjöf, sem þau eiga við að búa. Jeg held því nú fram, að það sje lífsskilyrði fyrir sjómenn, sem og aðra verkamenn, að til sjeu nægilega öflug atvinnufyrirtæki, sem veitt geti góða og stöðuga atvinnu. Tillögur stjórnarinnar miðuðu í þá átt að styrkja slík fyrirtæki og gera þeim kleift að halda áfram atvinnurekstri sínum. Þessari stefnu vilja líka sjómenn og verkamenn fylgja. En hv. 2. þm. Reykv. vill þrengja að þessum fyrirtækjum sem mest hann má, svo að skortur og óánægja verði landlæg hjer. En slíkt gefur þeim mönnum byr undir báða vængi, sem lifa á því að æsa verkalýðinn gegn vinnuveitendunum. En stefna stjórnarinnar og stefna mín í þessu máli er heilbrigðari en stefna hv. 2. þm. Reykv. Enda fjekk jeg við síðustu kosningar hjer jafnmörg verkamannaatkvæði og hann. Jeg fjekk 2/3 allra greiddra atkvæða, en hann 1/3 Nú er það vitanlegt, að 2/3 hlutar bæjarbúa eru verkamenn, og hefi jeg því fengið helming atkvæða þeirra. Þetta stafar eingöngu af því, að mín stefna er hagstæðari öllum þorra verkamanna en stefna þessa hv. þm.

Þá sagði þessi hv. þm. í ræðu sinni, að Nd. ætti að ráða meiru um það, hvort stjórnin sæti, en Ed. Ekkert færði hann þessu til stuðnings, annað en það, að þessi deild rjeði meiru um fjárlögin. En þetta er misskilningur hjá honum, að Nd. ráði meiru um fjárlögin en Ed. Ef ágreiningur verður um fjárlögin og skiftingin er 21 atkv. gegn 21, þá er það einmitt sá flokkurinn, sem fleiri fulltrúa hefir í Ed., sem ræður, er fjárlögin fara samkvæmt þingsköpunum í sameinað þing, hvernig þau líta út. Hv. þm. hlýtur að sjá það, að allar brtt. við það, sem Ed. hefir gert, hljóta að falla með jöfnum atkvæðum í sameinuðu þingi. Það er því á algerðum misskilningi bygt, að Nd. ráði meiru um fjárlögin.

Það var gaman að heyra hv. 2. þm. Reykv. lýsa yfir því, að allir væru sammála um aukning lögreglu á sjó og landi. En þetta er ofmælt. Þó að hann sje í hjarta sínu samþykkur þessu, þá eru þó þeir menn í flokki hans, sem ýta honum fram, eindregið á móti allri lögreglueflingu. Það, sem þeir hafa fyrir stafni, gengur alt greiðlegar, ef engin lögregla er til í landinu. Það er því alls ekki rjett, að allir sjeu sammála um þetta.

Jeg læt svo útrætt við þennan forustumann stjórnarandstæðinga hjer í deildinni. Hann hefir, svo sem rjett er, fundið, að socialistarnir eru hinn eiginlegi andstöðuflokkur stjórnarinnar, og því er honum rjett og skylt að taka upp merki stjórnarandstæðinga. Framsóknarflokkurinn hefir líka skilið sitt hlutverk rjett, er hann lýsir yfir því, að hann vilji ekki gangast fyrir vantraustsyfirlýsingu, en fylgi foringjanum, þegar hann ber fram merkið.

Jeg get virt ástæður hv. þm. Str. (TrÞ) fyrir því, að flokkur hans áleit ótímabært að greiða stjórninni atlögu, þær ástæður, að ekki væri sigurs von.

Hinsvegar getur engum komið á óvart, þótt flokkurinn vilji ekki kasta steini á hv. 2. þm. Reykv. (JBald) fyrir flutning þáltill. um vantraust. Þessi till. þýðir ekki annað en það, að hinn eðlilegi foringi, jafnaðarmaðurinn, blæs til atlögu, og þá fylgir alt liðið, en kastar auðvitað ekki steinum á foringjann.

Hv. þm. (TrÞ) bar fram nokkra kveinstafi yfir því, að stjórnin hefði ekki nægilega öflugt fylgi í þinginu, og stakk upp á, að rjettast væri að gera tilraun til að ráða bót á þessu með nýjum kosningum. Hann lýsti yfir því, að hv. stjórnarandstæðingar hefðu ekki hugsað sjer að taka við stjórnartaumunum, en taldi hinsvegar óheppilegt, að stjórnin hefði ekki nægan liðsstyrk í þinginu, og vildi fá þjóðina til að bæta úr þessu við nýjar kosningar. Þetta verð jeg, eftir öllum atvikum, að álíta virðingarverða traustsyfirlýsingu, þegar hún er borin fram af stjórnarandstæðingi undir umr. um vantraust.

Þar sem hv. þm. (TrÞ) mintist lítillega á stofnun dócentsembættisins við heimspekideild háskólans, þá þykir mjer hlýða að gera nokkra grein fyrir minni skoðun á því máli, einkum þar sem jeg let það farast fyrir, þegar málið var hjer til umr. í þinginu. Þetta kennaraembætti var lagt niður á síðasta þingi af sparnaðarástæðum. Þá voru margskonar sparnaðarráðstafanir knúðar fram, vegna brýnnar nauðsynjar ríkissjóðs. Nú horfir öðruvísi við, sem m. a. má sjá af því, að gjaldabálkur fjárlagafrv. hefir í meðferð þingsins hækkað um nálega 1 miljón kr., og þó hefir stjórnin ekki neitað að taka við slíkum fjárlögum, þar sem hún telur ekki ómögulegt, þrátt fyrir svo miklar fjárveitingar úr ríkissjóði, að fylgja fram þeirri höfuðfjármálastefnu sinni að greiða lausaskuldir ríkissjóðs á fáum árum. Svo mjög hefir ástandið breyst til batnaðar. En um sparnaðarráðstafanir síðasta þings er það ennfremur að segja, að þeirra vegna var aðeins einum einasta manni vísað úr ríkisins þjónustu án þess að honum væri sjeð fyrir öðru starfi. Og sá maður var málfræðisdócentinn við heimspekisdeild háskólans. Það eitt út af fyrir sig, að þessi maður, einn allra starfsmanna ríkisins, var þannig sviftur lífsframfæri sínu, var mjer næg ástæða til að vilja gera einhverja rjettingu í þessu efni á yfirstandandi þingi, eftir því sem fjárhagnum nú er komið. En hjer við bætast ýmsar aðrar ástæður, sem hæstv. forsrh. (JM) og hv. þm. Dala. (BJ) færðu fram undir meðferð málsins og jeg þarf því ekki að endurtaka nú.

Hv. þm. (TrÞ) vill rita afgreiðslu fjárlagafrv. á reikning hv. þm. Dala. (BJ). Jeg skal játa, að fjárlagafrv. hefir að ýmsu leyti verið afgreitt á annan veg en jeg hefði helst kosið; en það get jeg jafnframt sagt, að hv. þm. Str. ber, sem frsm. síðari hluta frv., meiri ábyrgð á mestu fjáreyðslunum en hv. þm. Dala.

Alt, sem hv. þm. (TrÞ) sagði um mikilmensku mína í Íhaldsflokknum og stjórninni, var ekki annað en oflof. Jeg geri að vísu ekki ráð fyrir, að hv. þm. (TrÞ) hafi ætlað að hlaða lofi á mig, enda er tækifærið illa til þess valið frá hans sjónarmiði, heldur mun hann hafa viljað kasta skugga á samverkamenn mína. En á þá fellur enginn skuggi í sambandi við þessa till., enda hefir lítið orðið úr rökum, er á þá hefir verið láðist.

Jeg hefi þegar svarað þeirri staðleysu, að stjórnin sje fyrst og fremst stjórn hinna ríku í höfuðstaðnum. En jeg vil bæta því við, að hv. þm. Str., sem er fulltrúi fyrir bændakjördæmi, ætti að skilja, að hagur heildarinnar veltur á því, að atvinnuvegir landsins geti blómgast. Svo er því varið í sveitunum, og ef hv. þm. hefir augun opin, þá mun hann fljótt komast að raun um, að sama máli gegnir í kaupstöðum og sjávarþorpum.

Jeg ætla ekki að ræða um þau stjfrv. og lög, sem hv. þm. (TrÞ) taldi upp og vildi gera lítið úr. En jeg skal leyfa mjer að hafa upp, eftir minni, ummæli eins flokksbróður hv. þm. (TrÞ) í hv. Ed. ekki alls fyrir löngu, og vona jeg, að það verði ekki misvirt við mig. Hv. þm. A.-Húnv. (GÓ) sagði í ræðu í hv. Ed., að Ræktunarsjóðslögin væru langmerkustu lögin, sem þetta þing hefði afgr., og ef þingsins yrði minst fyrir nokkuð, þá yrði það fyrir þau lög. Frv. til Ræktunarsjóðslaganna var stjfrv., en auðvitað láðist hv. þm. Str. að geta þess í upptalningu sinni. Það átti ekki við — við þetta tækifæri.