14.05.1925
Neðri deild: 80. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 499 í D-deild Alþingistíðinda. (3283)

137. mál, vantraust á núverandi landsstjórn

Atvinnumálaráðherra (MG):

Hv. 2. þm. Reykv. (JBald) hefir nú talað svo lengi, að það er enginn þm. orðinn eftir nema jeg hjermegin borða, en jeg skal reyna að vera stuttorður.

Jeg vil fyrst leiðrjetta misskilning hans út af atkvæðagreiðslunni í Krossanesmálinu. Hann sagði, að þar hefði jeg ekki átt að greiða atkvæði, með því að þar hefði verið um að ræða vantraust eingöngu á mig, og hann sagði, að þegar ræða væri um vantraust á einn ráðherrann, þá mætti sá ráðh. ekki greiða atkv., en ef um væri að ræða vantraust á alla stjórnina, þá væri ekkert á móti því, að ráðherrar greiddu atkvæði. Nú var tillagan í Krossanesmálinu vantraust á stjórnina í heild sinni og henni því heimilt að greiða atkv. eftir orðum hv. 2. þm. Reykv. þá sagði sami hv. þm., að jeg hefði dregið úr mönnum að höfða mál gegn verksmiðjunni, og slíkt hið sama hefði bæjarfógetinn á Akureyri gert. En þetta er hið mesta fleipur. Og þó að það væri rjett, þá ætti hv. þm. að vita, að þótt mál tapaðist á Akureyri, þá er til hæstirjettur. Og ef menn hætta við málssókn vegna minna orða, þá verð jeg að skoða það sem traust á mjer sem lögfræðingi.

Þá mintist hv. þm. á sjúkratryggingarmálið og sagði, að berklaveikiskostnaður væri ekki annarsstaðar innifalinn í sjúkratryggingunum. En svo er þó víða. Ef um almenna sjúkratryggingu er að ræða, þá er fyrst og fremst talinn með berklaveikiskostnaður.

Þá hengdi þessi hv. þm. sig í nefskattinn. Jeg hefi nú setið með honum á mörgum þingum, og það hefir varla komið fram eitt einasta skattamál, sem hann hefir ekki sett sig á móti. En hinsvegar samþykkir hann því nær öll útgjöld, sem tillögur koma um. Ef hann ætti að stjórna landinu, þá væri það ekki lengi að fara á hausinn, með þessari ráðabreytni. En ef hann kæmist nokkurn tíma í stjórn, mundi hann sennilega sjá sig um hönd og renna sem rakki frá þessu fleipri sínu, eins og öðru.

Hv. þm. Str. (TrÞ) hjelt langa rœðu í gær. Hann sagði í henni, að alt þetta þing hefði verið svo að segja ein samanhangandi vantraustsyfirlýsing á hendur stjórninni. Og þetta var eitt af því fáa, sem rjett var í ræðu hv. þm. Fyrir hans tilverknað sjerstaklega í þessari deild, og fyrir tilverknað hv. 5. landsk. (JJ) í Ed., hefir þetta þing orðið svo langt, sem raun er á. Því að þeir og einstaka fylgifiskar þeirra, en þó sárfáir, hafa gert alt, sem þeir hafa getað, til þess að nota hvert mál til pólitískra árása. Af þessu hefir leitt, að þingið hefir orðið svo að segja ein samanhangandi vantraustsyfirlýsing, og geta allir sjeð, hver áhrif það muni hafa haft á lengd þingsins. Það var gott að fá viðurkenningu fyrir þessu nú í þinglokin, því að þá getur enginn verið í vafa um, hver á sök á þessu langa þingi.

En hver hafa nú orðið áhrifin af þessari 95 daga vantraustsyfirlýsingu? Flestir mundu ætla, að stjórnin hefði veikst við þessa nær 100 daga skothríð. En það er þvert á móti. Hún er sterkari nú en í þingbyrjun og hefir á þessu þingi komið fram málum, sem snerta báða aðalatvinnuvegi landsins og munu halda uppi nafni þess flokks, sem að þeim stóð. Og nú þegar hv. þm. Str. sjer, að hann hefir engu á orkað alla þessa 95 daga, og hann hefir ekki tök á að lengja þingið meir, þá óskar hann eftir nýjum kosningum.

En hví skyldi stjórnin óska nýrra kosninga? Hún telur sig sitja við meiri hl. þings, og þó að hún mundi auka þann meiri hl. við nýjar kosningar, þá er ekki fyrir þeirra hluta sakir forsvaranlegt að leggja á þjóðina allan þann kostnað, sem því er samfara og hlýtur að verða nokkur hundruð þúsunda kr., því að aukaþing væri þá óumflýjanlegt. Kosningar segist hann vilja fá til þess að fá sterka stjórn. En beinlínis hlægilegt verður þetta í munni hv. þm. Str., er hann jafnframt heldur því fram, að í stjórninni sje maður, hæstv. fjrh. (JÞ), sem alla mylji undir sig og öllu ráði. Því meðan hann er í stjórn hlýtur hún að vera sterk, eftir því sem hv. þm. (TrÞ) segir sjálfur, og nýjan kraft handa honum er því ekki þörf á að sækja með nýjum kosningum.

Annars er það mjög ánægjulegt fyrir okkur Íhaldsmenn að heyra undirforingjann úr andstöðuflokknum, hv. þm. Str., hefja formann Íhaldsflokksins svo til skýjanna, sem hv. þm. gerði í gærkvöldi. Við íhaldsmenn erum því auðvitað samdóma, en við áttum satt að segja ekki von á því úr þessari átt. Um hv. þm. Str. má í þessu segja: „Bragð er að þá barnið finnur“.

Hitt er mjer ljóst, að þetta lof átti að vera last um mig og hæstv. forsrh. En ef hv. þm. (TrÞ) heldur, að hann með þessari Krókarefsaðferð geti spilt samkomulaginu í Íhaldsflokknum, þá fer hann algerlega villur vegar.

Jeg veit varla, hvort jeg á að svara hinum persónulegu hnútum, sem hv. þm. Str. kastaði að mjer í gærkvöldi. Hann hefir nú farið svo margar krossferðir á hendur mjer, að mig skiftir litlu, þó að þessi bætist við.

Hann gerði í þetta sinn að umtalsefni einstöku atkvgr. mínar hjer á þessu þingi, en jeg hlýt að segja honum, að jeg mun sjálfur ráða mínu atkv., en ekki hann, og það er best fyrir hann að gera sig ekki breiðari en hann er, því að enn þá fer hann ekki með atkv. nema fyrir Strandamenn, og jeg á ekki að standa honum reikning fyrir atkv. mínu, heldur Skagfirðingum, og meðan þeir trúa mjer fyrir að fara með atkv. sín vegna hjer á þingi, þá mun jeg gera það á þann hátt, sem jeg tel rjettastan, án tillits til þess, hvað hv. þm. Str. segir.

Hv. þm. breiddi sig mikið yfir það, að jeg hefði átt að halda uppi tóbakseinkasölunni, af því að jeg kom henni á og vonir mínar um hana brugðust ekki. En eins og hann tók fram, er sú verslun aðeins aðferð til að afla tekna, sem nú á að afla á annan hátt. Jeg sá því ekki ástæðu til að gera þetta að kappsmáli, enda greiddi jeg ekki atkv. með afnámi hennar, heldur ljet það hlutlaust. Hv. þm. Str. virtist líta svo á, að hverjum og einum sje skylt að halda uppi þeim lögum, sem hann hefir verið með til að samþykkja, en þá vil jeg benda honum á, að hann hefir sjálfur svikið þessa skyldu á þessu þingi, því að hann hefir greitt atkv. með að nema úr gildi lögin um búnaðarlánadeildina, sem hann flutti á síðasta þingi. Hann sjer því hjer flísina í auga bróður síns, en gætir ekki bjálkans í eigin auga.

Ennfremur talaði hv. þm. Str. um, að jeg hefði verið kúgaður af mínum flokki í tóbakseinkasölumálinu. Þar fer hann með það, sem hann veit ekkert um, því að ekki hefir hann verið á fundum Íhaldsflokksins, en halda má hann þeirri skoðun mín vegna. En illa situr á honum að ræða um flokkskúgun, því ekki verður annað sjeð en að hann hafi sjálfur verið kúgaður í því máli, sem hjer er til umr., því að í blaði sínu í vetur lýsti hann yfir því ótvírætt, að hann mundi flytja vantraustsyfirlýsingu á þessu þingi. En það hefir hann ekki gert. Það situr því ekki á honum að bera á aðra, að þeir geti ekki haldið skoðun sinni, þegar upplýst er um hann, að hann svíkur loforð sín og er svínbeygður af sínum flokki.

Í Vídalínspostillu stendur þessi ágæta setning: „Andskotinn setur brillur á rjettarins nasir, svo hann rammar ekki þann höggstað sem skyldi“. Þetta á vel við um hv. þm. Str. Hann hefir á nösum sjer pólitískar brillur í hverju máli, og þessar brillur vinna sama verk og spjespegill, þegar andstæðingar hans eiga í hlut, og þegar þeir eiga í hlut, sýnist honum öll verk þeirra alt önnur en þau eru. Og meðan hann er með brillur þessar er honum varnað rjettdæmis um andstæðinga sína, og þess vegna hefir farið svo fyrir honum í þessu máli, að hann í vanmegna reiði sinni hefir hengt sig aftan í eina viðurkenda sósíalista þingsins og ætlar nú að samþykkja vantraustsyfirlýsingu á stjórnina út frá nákvæmlega sömu forsendum og sósíalistinn. Það er því rjett, sem hæstv. fjrh. hefir sagt, að hv. þm. Str. fylgir í þessu máli foringja sínum.