14.05.1925
Neðri deild: 80. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 528 í D-deild Alþingistíðinda. (3289)

137. mál, vantraust á núverandi landsstjórn

Atvinnumálaráðherra (MG):

Jeg skal ekki vera margorður, aðeins segja fáein orð við hv. þm. Str. (TrÞ). Hann vill nú ráða, ekki einungis hvernig jeg greiði atkv., heldur hvenær og hvernig jeg tala. Honum þykir undur, að jeg skuli ekki vilja vaða elginn látlaust, eins og hann. En jeg geri ekki leik að því, að þetta þing standi lengur en 100 daga.

Svo er það kúgunin. Jeg hefi sýnt fram á það, að hv. þm. lofaði vantrausti í vetur. Og hann hefir margendurtekið það — en brugðist. Menn vita ástæðuna. Hann hefir verið kúgaður af sínum flokki til þess að láta það vera.

Hann sagði einnig, að mín merkustu mál hefðu verið rifin niður, t. d. tóbakseinkasalan. Það hefði verið aðferð til þess að ná tekjum. Það er alveg rjett. En nú er önnur aðferð upp tekin án þess að jeg skifti mjer af þvi. En sjálfur hefir hann komið með eitt mál í fyrra og drepið það nú. Hann ætti því ekki að lá þeim, sem koma fjölda mála gegnum þing, þó einhverju verði breytt, er mörg ár eru liðin.

Hv. þm. Str. segir, að sjer sje til hlýtt til mín. Hann er þá nokkuð dulur á tilfinningar sínar, og það er þá nýlega til komið. Annars mun þetta vera ein af missýningum hv. þm. Str., og valda því eflaust brillurnar. En raunin er sú, að jeg hefi aldrei orðið fyrir annari eins óbilgirni af nokkrum manni eins og af hv. þm. Str.

Honum er illa við brillurnar, sem jeg sýndi fram á að hann hefði á nefinu, og vill setja þær á mig. Jeg vil þær ekki. En ef hann vill taka þær ofan, gleðst jeg hans vegna, þó jeg vilji ekki setja þær upp sjálfur, því að honum vil jeg síst líkjast. En leiða vil jeg athygli hv. þm. að því, að þar sem hann og allur Framsóknarflokkurinn ætlar að greiða vantrauststill. 2. þm. Reykv. (JBald) atkv., þá hefir flokkurinn tekið hann að foringja og lýst yfir fylgi við hann. Þetta verður ekki úr skafið, enda enginn ágreiningur milli þessara hv. þm.