14.05.1925
Neðri deild: 80. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 529 í D-deild Alþingistíðinda. (3290)
137. mál, vantraust á núverandi landsstjórn
þorleifur Jónsson:
*) Jeg var ekki inni, þegar hæstv. fjrh. (JÞ) talaði, en eftir því, sem mjer heyrist á hæstv. atvrh. (MG), þá á Framsóknarflokkurinn að hafa skrifað undir alt, sem hv. 2. þm. Reykv. hefir sagt. Svo er að vísu ekki, en enga óþökk fær hv. 2. þm. Reykv. af okkur, þó hann hafi tekið sig fram um þetta.
Hv. þm. Str. (TrÞ) hefir farið rjett með, hvernig flokkurinn hefir litið á vantraustsyfirlýsingu. Hv. þm. (TrÞ) hefir ekki viljað þvinga hana fram og því síður verið kúgaður til þess að láta það vera. En flokkurinn hefir álitið, að ekki þýddi að koma með það, eins og sakir stæðu, það mundi ekki ganga í gegn. En jeg vænti, að hæstv. stjórn og Íhaldsflokkurinn sjái, að þegar vantraustið er komið fram, þótt frá öðrum flokki sje, þá er eðlilegt, að Framsókn greiði því atkv., því að það er ekki hægt að neita því, að stjórnin hafi getað átt von á vantrausti. Henni er kunnugt um, að flokkurinn treystir henni ekki til að fara með völd.
Íslendingar hafa aldrei átt kastala til þess að verjast útlendu ofríki. En á stríðsárunum komum við okkur upp vígi. Það var Landsverslunin og skipin. Enn þann dag í dag er Landsverslunin okkur vígi gegn fjárdrætti útlendra peningapúka.
það er sorglegt, að stjórnin skuli hafa rofið þetta vígi. Með það fyrir augum blandast mjer ekki hugur um, að jeg greiði vantrausti atkv.
*) Óyfirlesin ræða.