22.04.1925
Efri deild: 58. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 613 í D-deild Alþingistíðinda. (3329)

101. mál, sveitarstjórnar, bæjarstjórnar- og fátækralöggjöf

Magnús Torfason:

Jeg held, að þetta sje í þriðja eða fjórða sinn, sem verið er að leggja í allshn. Nd. Jeg held, að engin ástæða sje til þess, því að jeg er viss um, að hún hefir unnið sín störf eins vel eins og hver önnur nefnd. Hún hefir haldið langflesta fundi, sem sje á hverjum virkum degi. Auk þess hefir hún oft unnið lengur en nefndartímann, bæði á morgnana og um eftirmiðdagana. Jeg hefi oft orðið að hætta við að taka þátt í umr., af því að jeg hefi ekki haft tíma til þess fyrir nefndarstörfum.

Tillagan um nefndarskipunina var gerð í fullu samráði við allshn. Ed., og þaðan komu upptökin að þessu, og ástæðan til þess var sú, að svo var litið á, að flest af þessum sveitarstjórnarmálum mundu alls ekki komast í gegnum þingið, en hvað það snertir, þá veit jeg ekki til, að andstæður við stjórnina hafi átt neinn þátt í þessu, því að megnið af þessum frv. voru þingmannafrumvörp, og getur slíkt því ekki komið til mála. Og hvað það snertir, að jeg telji það, að þótt stjórnin undirbúi málið, mundi verða erfitt að koma því í gegnum þingið, eins og það er samsett nú, þá þyrfti það ekki að vera af andstöðu við stjórnina, heldur blátt áfram af því, að kosningar hafa farið þannig, að nokkurn veginn jafnt er skift liði milli þeirra, sem styðja sjávarútveginn, og þeirra, sem styðja sveitirnar, en baráttan er þar á milli, og eins og enn er komið, hefir ekkert verið ráðist á stjórnina í þessu máli. Jeg held satt að Segja, að hv. þm. Borgf. (PO) viti ákaflega lítið, hvað mjer er innanbrjósts, en hann leit svo á, að jeg mundi þekkja minn innra mann. Jeg skal ekkert um það segja, en það er. alveg áreiðanlegt, að hv. þm. Borg. þekkir ekki sinn innra mann.