08.05.1925
Neðri deild: 75. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 663 í D-deild Alþingistíðinda. (3368)
117. mál, brúargerð á Hvítá í Borgarfirði
Flm. (Pjetur Þórðarson):
Jeg get, eftir atvikum, látið ánægju mína í ljós yfir ræðu hæstv. atvrh. (MG) og undirtektum hans í þessu máli. Var mjer raunar kunnugt áður, að hv. þm. Borgf. (PO) hefir jafnan fylgst vel með þessu máli og að hann hefir jafnan stutt allar till., sem stuðlað gátu að framgangi þess. Sömuleiðis gleður það mig, að hv. þm. Borgf. skuli einnig leggja sjerstaka áherslu á þetta mál nú, og engu síður þótt hann hafi farið aðra leið með sínar till. en jeg hefi valið fyrir þessa till. Og þótt hv. þm. (PO) hafi á sjerstakan hátt borið sínar till. um málið fram og án þess að jeg hafi um það vitað, þá fer það ekki í bága við málefnið að neinu leyti. Jeg skildi hæstv. ráðherra svo, að þessu máli væri sæmilega borgið í hans umsjá og að hæstv. stjórn mundi hafa áhuga fyrir því, og má þá vænta, að það komist í framkvæmd áður en langt um líður. Vitanlega má ráða það af orðum hæstv. ráðh., að það geti farið svo, að ekki verði þetta ráð tekið, sem bent er á í till. minni, um sjerstaka sölu ríkisskuldabrjefa, en vel mætti það verða í sambandi við eina allsherjarlántöku á sama hátt.
Í stuttu máli sagt er jeg mjög þakklátur fyrir hinar góðu undirtektir, sem þetta nauðsynjamál hefir fengið, hvað sem þessari till. líður, og vona jeg, að framkvæmd þess fari þar eftir.