08.05.1925
Neðri deild: 75. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 670 í D-deild Alþingistíðinda. (3377)

117. mál, brúargerð á Hvítá í Borgarfirði

Tryggvi Þórhallsson:

Hæstv. ráðherra (MG) brást dálítið reiður við og sagðist ekki hafa lýst eftir mínum vitnisburði um þetta og tæki hann mjög lítt gildan. Jeg er ekki að lýsa eftir ummælum um þennan vitnisburð, en jeg tek það yfirleitt lítið gilt, sem hæstv. ráðherra segir í þessu máli. Þykir mjer það leiðinlegt, að jeg, ólöglærður maður, skuli þurfa að minna hæstv. ráðh. á það, að þegar um vitnaleiðslur er að ræða eins og þessa, þá er það ekki sá, sem fyrir sökinni er hafður, sem á að úrskurða, hvers virði vitnisburður sje. En hvað sem hæstv. ráðherra gerir við vitnisburð minn, þá skal hann gæta þess, að einn af hans eigin flokksmönnum hefir borið vitni mjer samkvæmt í þessu máli.