01.05.1925
Efri deild: 65. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 675 í D-deild Alþingistíðinda. (3387)

121. mál, samgöngubætur milli Reykjavíkur og Suðurláglendisins

Fhn. (Jónas Jónsson):

Þetta efni hefði mátt ræða í fyrirspurnarformi, en af því að það hefir stundum komið fyrir, að ýmsar stjórnir hafa ekki gefið nein ákveðin svör við fyrirspurnum, rjeð jeg af að hafa þetta form. Eins og menn sjá, liggur í þessari ályktun ósk um að fá að vita, hvað stjórnin kunni að hafa gert í járnbrautar- og vegamálum á Suðurláglendinu, og svo hvað hún hygst að gera í náinni framtíð. Það er öllum kunnugt, að skömmu áður en núverandi stjórn tók við var lokið rannsókn, sem útlendur verkfræðingur gerði um framkvæmanleik málsins, og þá var jafnframt athugað, hvað kostaði að leggja veg, sem væri fær bæði sumar og vetur, hjer um bil sömu leið. Mjer er kunnugt um aðeins óútkomna ritgerð um þetta efni Jeg hefi ekki sjeð hana sjálfur, en hefi frjett af henni, og þar sem jeg hygg, að hún sje eftir vegamálastjóra, býst jeg við, að hæstv. atvrh. (MG) sje kunnugt um þær niðurstöður, sem hann hefir komist að.

Það hefir verið skýrt frá því í helsta blaði Norðmanna, „Tidens Tegn“, að útlent fossafjelag mundi ætla að virkja Urriðafoss. Einnig er því haldið fram, að nú væri þetta fjelag að komast að samningum við stjórnina um sjerleyfi. Jeg þykist vita, að þetta sje eitthvað orðum aukið; en þar sem Sunnlendingar líta svo á, að þessi leið kynni að bæta úr samgöngumálum þeirra, væri æskilegt, ef hæstv. atvrh. vildi skýra frá, ef það er ekki sjerstakt leyndarmál, hvað hæft er í þessu. Hvað virkjun fossanna viðvíkur, hefi jeg aldrei lagt mikinn trúnað á, að þetta fjelag hefði kraft til að framkvœma mikið í því efni, en það, sem hjer um ræðir, er ekki virkjunin, heldur hitt, að fjelagið ætli að leggja járnbraut í sambandi við hana. Það fer að líða að því, að Flóaáveitan verði tilbúin. Það er stærsta áveitan, sem gerð hefir verið hjer á landi, og líklega sú stærsta, sem yfirleitt er hægt að gera hjer, og þessu fyrirtæki verður að fylgja samgöngubót, ef vel á að vera. Kostnaðurinn verður svo mikill á þessa fáu bændur, að þeir hljóta að flosna upp frá búum sínum, en ekki er líklegt, að það takist að fjölga býlunum, nema samgöngubót fáist. En það er einungis um tvær leiðir að ræða, annaðhvort járnbraut eða veg, sem er fær alt árið. Þar sem nú slíkur vegur mundi verða ákaflega dýr er þetta alt þess eðlis, að ástæða er til að óska, að stjórnin skýri frá ráðagerðum í þessu efni. Jeg býst reyndar við, að stjórnin segi, að eins og nú standa sakir, geti hún ekki gert neitt í þessu máli, þar sem landið sje svo skuldugt. En nú vill svo til, að hæstv. fjrh. (JÞ) hefir látið sjer mjög ant um þetta mál og skrifað talsvert um það. Þegar því loksins er búið að gera þá áætlun, sem óhætt mun vera að byggja á, veit jeg, að menn búast við því, þó að hv. 1. þm. Reykv. og hœstv. fjrh. (JÞ) sje ekki atvrh., að hann láti sig málið skifta. Í öðru lagi man jeg ekki betur en að þegar hæstv. forsrh. (JM) bauð sig fram til þings, ljeti hann það í ljós, að þessi lausn á samgöngumálunum lægi sjer mjög á hjarta. Jeg geri því ráð fyrir, að hann muni gera sitt til að halda þræðinum óslitnum.

Þá kem jeg að því atriði, sem jeg býst við að jeg megi segja, að sje mótbárurnar gegn þessu. En það er kostnaðurinn. Jeg er ekki með þessari tillögu að óska eftir öðru en skýringu, en þó að við losnum við eitthvað af okkar skuldum á næstu 3–4 árum, eins og gert er ráð fyrir, þá ætti það að vera öllum ljóst, að hvort sem gerður er bílvegur fyrir einar 3–4 miljónir, eða lögð járnbraut fyrir 6 miljónir, þá er ókleift að gera það nema með láni. Jeg býst við, að Sunnlendingar verði orðnir langeygðir eftir þessu, ef þeir eiga að bíða eftir, að það verði gert með framlögum, eins og t. d. Hróarstunguvegurinn. Það er því engin afsökun, þó að landið sje skuldugt, því að annaðhvort er þetta ekki gert, eða þá með láni. Nú er svo ástatt, að þessi mikla jarðabót, sem verið er að gera fyrir austan, kemur að litlu gagni, og verður meira að segja til bölvunar, ef ekkert er gert til að gera mögulegt að flytja bæði hey og landbúnaðarafurðir hingað. Bændurnir flosna upp frá búum sínum, þegar þeir þurfa að borga fyrir þessa stórfeldu umbót, sem gefur þeim of litlar tekjur til að standast vexti og afborganir.

Þessa umbót er þegar búið að gera á Skeiðunum og er nú verið að gera í Flóanum. En allar þessar áveitur verða tóm fásinna, ef ekki á að fjölga fólki, en það verður aðeins gert með samgöngubótum. Jeg vona því, að stjórainni sje ljóst, að annaðhvort er Flóaáveitan fjarstæða, eða að samgöngubætur verða að fylgja á eftir. Jeg býst þá við, að jeg hafi fullskýrt, hvað jeg á við, sem sje að fá að vita, hvað aðgerðir á að byggja á áætlunum hins norska verkfræðings, og hvort nokkuð sje hæft í því, sem „Tidens Tegn“ segir um samningana við „Titan“, hverju „Titan“ lofaði, ef fjelagið fengi sjerleyfi, og hvort það hefði lofað að byggja járnbraut.

En ef „Titan“ hefir engu verið heitið, hvað er þá hugsað um málið? Eða hefir ekki vegamálastjóri gert áætlun um nýtískuvegi, sem haldið yrði auðum með snjósköfu, og hvað mundi sá vegur kosta? Eða vill stjórnin heldur járnbraut? Eða hafa ekki verið gerðar áætlanir um Flóaáveituna og aðrar framkvæmdir á Suðurlandi í sambandi við það mál? Jeg hygg, að af þessu sje ljóst orðið, að hæstv. atvrh. (MG) ætti að hafa eitthvað, sem honum þætti gaman að skýra þinginu frá, og sama œtti að vera um hæstv. forsrh. (JM). Hann hefir áður sagt, að sjer væri þetta mál áhugamál, enda er þessu svo varið, að allar framkvœmdir í þessu máli hljóta að verða gerðar af allri stjórninni í sameiningu og þá ekki síst af hœstv. forsrh.