01.05.1925
Efri deild: 65. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 691 í D-deild Alþingistíðinda. (3396)

121. mál, samgöngubætur milli Reykjavíkur og Suðurláglendisins

Flm. Jónas Jónsson:

Jeg og hv. 1. þm. Rang. (EP) erum mjög sammála í þessu máli. Mjer þótti vænt um að heyra það, að honum þótti varhugavert, að þessar samgöngubætur yrðu faldar einu fjelagi með sjerleyfi, og þótti gott, að stjórnin skyldi heyra það úr fleiri en einni átt.

Mjer þykir undarlegt, hve illa hæstv. forsrh. (JM) bregst við í máli þessu. Er engu líkara en að stungið hafi verið í viðkvæmt kaun á líkama hans. Jeg get ekki skilið þetta öðruvísi en svo, að hann treystist ekki til að efna sín fyrri loforð. Hann var meira að segja svo ógætinn að segja, að þetta mál hefði átt að bíða til þingloka. Þetta er góð sönnun um áhuga hæstv. forsrh. á málinu.

Jeg hjelt, að jeg væri að gera hæstv. forsrh. greiða með því að benda honum á, hvað hann hefði átt að vera búinn að gera og hvað hann ætti að gera. En tómlæti hans er svo mikið, að hann fer að tala eins og maður með tæplega fullu ráði um form þáltill. Hann læst ekki skilja, að hún er í alveg rjettu formi. Hefði hæstv. forsrh. haft eitthvað að segja, lá beinast við að samþ. till., sem sýndi, að þingið vildi vita, hvernig málum væri komið. Síðan gat stjórnin verið við því búin einhvern daginn að gefa upplýsingar. En öll þessi barnalegu gremjuorð hæstv. forsrh. sýna, að jeg hefi farið alveg rjetta leið gagnvart honum. Hann telur málið svo ómerkilegt, að ekki taki að gera grein fyrir því. Hann hefir sýnt hjer í dag, að hann er algerlega áhugalaus um málið, en hefir þó einhverskonar sljótt samviskubit út af því, að kosningaloforðin síðustu hafi ekki verið haldin sem best. Áskorunin, sem samþ. var við þjórsárbrú í vetur á fjölmennum fundi, hefði átt að nægja til þess, að hæstv. forsrh., ef hann vildi vera trúr loforðum sínum, gerði grein fyrir því, hvað formaður stjórnarinnar ætlaði sjer í þessu máli. Það nær ekki nokkurri átt, að formaður stjórnarinnar viti ekki, hvernig taka skal á stærstu málunum.

Hæstv. forsrh. sýnist nokkuð gleyminn á það, sem hann lofar kjósendunum, þegar hann biður um fylgi. Hann sýnist ekki líklegur til þess að láta tilfinningarnar bæta upp það, sem vitinu er áfátt.