27.04.1925
Neðri deild: 65. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2616 í B-deild Alþingistíðinda. (3460)

118. mál, herpinótaveiði

Benedikt Sveinsson:

Þótt mál þetta sje mjer eigi mjög nákomið, vil jeg fara um það nokkrum orðum. — Mjer heyrðist hæstv. atvrh. mislíka, að mál þetta kæmi nú á dagskrá og að honum þætti jafnvel kenna þar hlutdrægni frá minni hendi. En þeim ákúrum vísa jeg alveg frá mjer. Það eru mörg atvik, sem að því liggja, hversu mál eru tekin á dagskrá, og vill oft ganga svo, að einn vill fá þetta mál og annar hitt, og því harla torvelt að gera öllum til hæfis. Get jeg skilið, að hæstv. ráðherra sje í nöp við frv. þetta, sakir þess, að hann er fulltrúi Skagfirðinga, en sem forvígismaður atvinnumála allrar þjóðarinnar ætti hann að taka því tveim höndum, því að það felur í sjer nauðsynlega rjettarbót.

Það er kunnugt, að landhelgin er tvennskonar; önnur sú, er fylgir hverri jörð, er að sjó liggur, og eru það oftast kölluð „nótlög“. Eru þau einkaeign hverrar jarðar. Síðan tekur við almenn landhelgi, sem nær þrjár sjómílur út frá landi, og er það svæði „almenningur“, eða sameign allrar þjóðarinnar. — Ef skerða skal þennan „almenning“ til hagsmuna fyrir sjerstakt bygðarlag, þá þarf til þess ríka og sjerstaka ástæðu. Þetta kemur helst til greina í þröngum fjörðum, þar sem síldveiði er stunduð til verulegra muna úr landi, — þar sem bygðarmenn standa öðrum betur að vígi að nota veiðina. — Á þessum grundvelli var það, að einn ötull og kappsamur þingmaður Eyfirðinga fjekk framgengt heimildarlögum árið 1913 fyrir sýslunefndir við Eyjafjörð að setja takmarkanir á herpinótaveiði þar. Jafnskjótt kom fulltrúi Skagfirðinga og skaut inn samskonar heimild um Skagafjörð. — Eyfirðingar hafa ekki notað þessa heimild frá 1913, og hefir þessu því verið lítill gaumur gefinn. Sýnir það, að hún hefir ekki verið næsta brýn. En 1923 tóku Skagfirðingar að færa sig upp á skaftið og tókst að koma ,,þegjandi og hljóðalaust“ í gegnum þingið nýjum heimildarlögum um aukning á því svæði á firðinum, sem áður var heimilað að setja samþykt um.

Nú hefir sýslunefnd Skagfirðinga neytt þessarar nýfengnu heimildar, og þá fyrst er sem menn vakni af svefni og sjái, hve viðsjárverð þessi lagasetning er.

Á það er að líta, hversu síldargöngur eru óstöðugar, síldin á sífeldu flugi. Dæmin sýna, að síld veiðist stundum ekki í herpinót nema örfáa daga að sumrinu, og þá er „útvegnum“ brýn nauðsyn að geta neytt færisins sem best. Stundum kemur það fyrir, að síld veiðist varla nema inni á Skagafirði, og getur þá allur hagur útgerðarinnar það árið oltið á því, hvort heimilt er að veiða þar. Hagsmunir þeir, sem hjer eru í veði, geta oltið á mörgum hundruðum þúsunda króna.

Á hinn bóginn er hjer um harla lítil eða alls engin hagræði að gera Skagfirðingum til handa, sakir þess að þeir stunda síldveiði nær ekkert, og þá aðeins lítilsháttar í lagnet, til þess að afla sjer beitu. En það má fullyrða, að þeir fá oftar og auðveldlegar beituna hjá herpinótaskipunum heldur en í net sín. Það þykir sjálfsagður greiði að gefa fiskibátum ríflega til beitu, þegar vel aflast í herpinætur. Að þessu leyti hafa þeir fáu, er sjó stunda við Skagafjörð, meiri trygging fyrir að fá beitu, ef leyfð er þar herpinótaveiði, heldur en ef hún er bönnuð.

Það er því mjög sennilegt, að það sje rjett hermt, sem sagt er, að þessi undirróður í Skagafirði gegn herpinótaveiði stafi af einhverjum kala dalabænda þar, sem þykir síldveiði óþægilegur keppinautur um vinnukraftinn, en alls ekki frá þeim fáu mönnum, sem eiga síldarnet út með firðinum.

Mál þetta alt mætti skýra miklu ger, en mjer virðist það liggja svo ljóst fyrir í höfuðatriðum, að óþarft sje af minni hálfu að fara um það fleiri orðum. Ber jeg svo gott traust til þess, að hv. deildarmenn sjái, hvers sannsýni og hagsmunir þjóðarinnar krefjast í þessu efni, að jeg efa ekki, að þeir láti frumvarpið fá greiðan framgang.