07.03.1925
Efri deild: 25. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1153 í B-deild Alþingistíðinda. (366)

5. mál, skiptimynt

Fjármálaráðherra (JÞ):

Jeg skal taka það fram, að stjórnin hafði vænst þess, að nauðsynlegt samþykki Noregs og Svíþjóðar yrði komið áður en málið þyrfti að fá afgreiðslu hjer. En nú hefir dráttur orðið á þessu, og því hefir stjórnin farið fram á þessa breytingu á frv., sem hv. allshn. hefir góðfúslega tekið til greina.