12.03.1925
Neðri deild: 31. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1154 í B-deild Alþingistíðinda. (372)

5. mál, skiptimynt

Frsm. (Árni Jónsson):

Jeg vil aðeins þakka hæstv. fjrh. (JÞ), að hann hefir nú gefið hv. þd. skýring á því, hvers vegna frv. var breytt í hv. Ed., og hinsvegar vil jeg geta þess, að þær breytingar hafa nú verið ræddar í allshn., og leggur hún til, að frv. verði samþykt með þeim breytingum.