11.02.1925
Neðri deild: 4. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1160 í B-deild Alþingistíðinda. (390)

10. mál, lán úr Bjargráðasjóði

Atvinnumálaráðherra (MG):

Eins og kunnugt er var bjargráðasjóðurinn stofnaður með lögum nr. 45, 10. nóv. 1913, og er svo ákveðið í 4. gr. þeirra laga, að sjóðurinn skuli ávaxtast í Landsbankanum, og í 12. gr. er ákveðið, að ef hallæri ber að höndum, á hvert hjerað tilkall til sjereignar sinnar til útbýtingar, og getur jafnvel fengið vaxtalaust lán úr hinum sameiginlega sjóði, ef mikið kveður að hallæri.

Þessi ákvæði um geymslu fjárins og útbýtingu þess voru eflaust rjett hugsuð á þeim tíma, sem lögin voru sett, vegna þess, að þá var vitaskuld ekkert fje í sjóðnum og um lítið fje að ræða á næstunni. Aðalathyglinni hefir því verið beint að fjársöfnuninni, og það með rjettu. Ákvæði 12. gr. vísa aðeins veginn í framtíðinni eftir að sjóðnum væri vaxinn nokkur fiskur um hrygg.

Nú er sjóðurinn orðinn yfir 600 þús. kr. og eykst nú töluvert hröðum fetum. Það virðist því nú vera kominn tími til þess að athuga það, hvort rjett sje að halda sjer við þessi ákvæði um geymslu fjársjóðsins. Og á síðustu árum hafa komið fram raddir um það hjer á þingi, að breyting ætti að verða á þessu. Um þessar raddir get jeg vísað til athugasemdanna við þetta frv. Því hefir með rjettu verið hreyft, að þeim hlutum landsins, sem lokast geta af hafís, væri litlu borgnara, þótt þeir ættu fje á vöxtum í Landsbankanum, því að alt að einu er aðflutningsteppa á vörum, nauðsynjavörum til þess að forða frá hungri og felli. Peningarnir verða ekki jetnir, heldur það, sem fyrir þá fæst, en þegar ekki er hœgt að flytja það að sjer, stoða peningarnir ekki hót.

Það má telja álitamál, hvort ekki hefir sumstaðar á landinu á síðastliðnum árum verið svo hart í búi, að forsvaranlegt hefði verið að úthluta einhverju af fje sjóðsins, samkvæmt upprunalegum tilgangi hans. En þetta hefir ekki verið gert, og tel jeg það vel farið, því að jeg tel miklu rjettara að lána fje sjóðsins gegn hæfilegum vöxtum en að ganga á höfuðstólinn og þurfa svo að byrja á nýjan leik.

Samkvæmt þessu fer frv. það, sem hjer liggur fyrir, í þá átt að veita heimild til lána úr sjóðnum gegn 5% vöxtum. Lán þessi á fyrst og fremst að veita hreppum, sem hafa ratað í vandræði vegna undangenginnar óáranar. Háttv. deild mun ekki ganga þess dulin, eftir skýrslum, sem komið hafa fram á undanförnum þingum, að til eru hreppar hjer á landi, sem eru svo illa stæðir, að nauðsyn er á að hlaupa undir bagga með heim. Og hagkvæmt lán mundi vera þeim nægur styrkur.

Í öðru lagi á að veita lán þessi fóðurbirgðafjelögum, og í þessu ætti einmitt þungamiðja starfsemi sjóðsins að vera fólgin, því að þótt vitaskuld sje gott og blessað að geta hjálpað, þegar í neyð er komið, þá er hitt þó miklu meira um vert, að fyrirbyggja, að neyðin berji að dyrum. Lán í þessu skyni eru því beinlínis í þeim anda, sem sjóðurinn á fyrst og fremst að starfa.

Í þriðja lagi er stungið upp á í frv., að veita megi lán til stofnunar bústofnslánadeilda, í þeim tilgangi að hjálpa bændum til þess að auka bústofn sinn, sem sumstaðar á landinu er mjög lítill. Jeg hefi lýst fyrirkomulagi þessara lánadeilda nokkuð nákvæmlega í aths. frv. og skal ekki endurtaka það hjer. En það er sannfæring mín, að ef vel er á haldið, geti sjóðurinn, með góðri stjórn þessara deilda, orðið landbúnaðinum til töluverðs gagns, sjerstaklega þegar sjóðurinn vex meir og fer að skifta miljónum.

Það er að sönnu svo um þetta mál, að það snertir ekki eingöngu landbúnaðinn, en það snertir þó svo lítið kaupstaðina, að jeg tel rjettast, að því verði vísað til landbn., og legg til, að svo verði gert, þegar þessari umr. er lokið.