23.02.1925
Neðri deild: 14. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1165 í B-deild Alþingistíðinda. (395)

10. mál, lán úr Bjargráðasjóði

Atvinnumálaráðherra (MG):

Jeg veit ekki, hvort hv. þm. Str. (TrÞ) hefir athugað, hvernig stjórn bjargráðasjóðs er skipuð. Í henni eru skrifstofustjóri atvinnumálaráðuneytisins, 2 menn, sem Búnaðarfjelag Íslands kýs, og 2 menn, sem Fiskifjelagið kýs. Búnaðarfjelag Íslands hefir því að lögum íhlutunarrjett um þessi mál, og aths. hv. þm. Str. (TrÞ) ekki á rökum bygð.