23.02.1925
Neðri deild: 14. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1166 í B-deild Alþingistíðinda. (397)

10. mál, lán úr Bjargráðasjóði

Frsm. (Halldór Stefánsson):

Jeg get ekki sagt um þetta atriði fyrir hönd nefndarinnar, en mjer finst þó, að Búnaðarfjelagið þurfi ekki að hafa hjer þá hönd í bagga, sem háttv. þm. Str. (TrÞ) ætlast til. Forðabúrin starfa eftir sjerstökum reglum, sem þeim hafa verið settar, og eins og hæstv. atvrh. (MG) hefir sagt, þá á stjórn bjargráðasjóðs tillögurjett um lánveitingar, og hún er þannig skipuð, að ekki er hægt að segja, að Búnaðarfjelagið sje einskis ráðandi um lánveitingar.