23.02.1925
Neðri deild: 14. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1166 í B-deild Alþingistíðinda. (398)

10. mál, lán úr Bjargráðasjóði

Atvinnumálaráðherra (MG):

Jeg get ekki fallist á, að rjett sje að útiloka Fiskifjelagsforstjóra frá stjórn bjargráðasjóðs. Samkv. ákvæðum frv. getur líka komið til mála, að lánin gangi til sjávarsíðunnar. Það er því ekki nema fullkomið rjettlæti, að hvort fjelagið um sig hafi sinn fulltrúa í stjórninni.