09.03.1925
Neðri deild: 29. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1173 í B-deild Alþingistíðinda. (413)
86. mál, Landhelgissjóður
Bjarni Jónsson:
Jeg get lýst ánægju minni yfir frv. þessu, þótt jeg hinsvegar líti svo á, að stjórnin hafi haft heimild þá, er hún fer hjer fram á að fá. Má því telja kurteisi af henni að sækja um hana nú. Jeg þarf varla að taka það fram, að jeg tel sjálfsagt, að lagt verði fram fje af ríkissjóði til rekstrarkostnaðar strandvarnaskipi því, er hjer ræðir um, að svo miklu leyti sem landhelgissjóðurinn hrekkur ekki til þess. En að sjálfsögðu þarf þá að leggja fram fje til samsvarandi ríkislögreglu á landi, til verndar borgurunum fyrir útlendingum og ofstopamönnum.
Að síðustu vil jeg taka undir með hv. þm. Str. (TrÞ), að reynt verði að leggja fram fje sem mögulegt er til eflingar þeirrar stjettar, sem lengst hefir verið kjarni þjóðfjelagsins, svo hún geti blómgast og dafnað í næði.