30.03.1925
Efri deild: 42. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1181 í B-deild Alþingistíðinda. (428)
86. mál, Landhelgissjóður
Jónas Jónsson:
Jeg skal við þessa umræðu leyfa mjer að benda á það, sem reyndar hefir verið talað hjer um áður, að það væri ef til vill hugsanlegt í sambandi við rekstur þessa skips, til að gera hann ódýrari, að innleiða þá skyldu, að væntanlegir skipstjórar, sem ganga á stýrimannaskólann, yrðu að vinna á því nokkra skylduvinnu. Það er nú þegar í lögum, að þeir verða að vera þrjú ár á allstórum gufuskipum, eða sem því svarar í siglingum, og það gæti vel komið til mála, að eitthvað af þeim tíma væri int af hendi á þessu skipi. Það hefir fyr verið talað um það á þinginu, að þetta gæti sparað nokkuð útgerðarkostnað skipsins. Vil jeg því skjóta því til hæstv. stjórnar að athuga þessa leið til að spara á útgerðarkostnaði.