01.04.1925
Efri deild: 44. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1188 í B-deild Alþingistíðinda. (431)

86. mál, Landhelgissjóður

Sigurður Eggerz:

Það er eiginlega í tilefni af ræðu hv. þm. Vestm. (JJós), að jeg vildi leyfa mjer að leggja nú aftur áherslu á þau sömu atriði þessa máls, sem jeg mintist á við 2. umr., af því að hæstv. forsrh. (JM) var þá ekki viðstaddur. Jeg lagði þá mikla áherslu á, að hið nýja skip væri vandað sem best og að sjeð væri um, að það hefði nægan hraða. Háttv. þm. Vestm. kom með sundurgreining á landhelgisgæslunni og kvað hana fólgna í því tvennu aðallega, að halda botnvörpuskipunum utan landhelginnar og svo því, að sekta skipin, sem óleyfilega veiddu. Jeg held, að það rjetta í þessu máli sje, að bæði með því að sveima um landhelgina og með því að sekta skipin sje þeim best haldið fyrir utan línuna. Því skipin fara varlegar í það að fara inn fyrir landhelgina, ef þau eiga von á háum sektum og verða rækilega vör við lögreglueftirlitið. Það er auðvitað einnig verulegt atriði, að skipin sveimi sem mest um landhelgina. Jeg vildi aðeins sjerstaklega benda á þessa kenning hv. þm. (JJós), sem komið hefir upp í seinni tíð og einkum í Vestmannaeyjum, vegna þess hve hægfara Þór er. Það er satt, að e/s Þór hefir reynst þeim þar vel, þó mest sem björgunarskip, en einmitt aðalgallinn á honum sem strandvarnaskipi er sá, að hann hefir alt of lítinn hraða. Og þetta mál, sem hjer um ræðir, er ekki fyrst og fremst mál neins einstaks kjördæmis, heldur er það þarfamál allrar þjóðarinnar. Og af því að það varðar svo mjög alla þjóðina, er nú verið að koma því á rekspöl, og hefði verið gert miklu fyr, ef fjárhagurinn hefði með nokkru móti leyft það hin síðari ár. Á þessu vildi jeg vekja athygli, að í þessu máli erum við ekki að vinna fyrir neitt eitt kjördæmi, heldur landið alt.