01.04.1925
Efri deild: 44. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1189 í B-deild Alþingistíðinda. (432)
86. mál, Landhelgissjóður
Forsætisráðherra (JM):
Það er sjálfsagt, að þegar stjórnin hefst handa í þessu máli, þá tekur hún til greina það, sem hv. sjútvn. beggja hv. þd. hafa lagt ríka áherslu á, að skipið verði bygt, en ekki keypt gamalt skip. Og er ráðgert, að hið nýja skip verði af sömu gerð og togarar og sæmilega hraðskreitt. Stundum hefir verið fremur lítil áhersla lögð á hraðann, en ráðuneytið leggur töluverða áherslu á hann og mun sjá um, að skipið hafi nokkru meiri hraða að minsta kosti en hinir hraðskreiðari botnvörpungar. Annars mun verða tekið tillit til þeirra óska, sem fram hafa komið, og þá einkum frá hv. sjútvn. hv. Ed. og hv. Nd. Það er rjett hjá hv. 1. landsk. (SE) — og auðvitað var það líka meining hv. þm. Vestm. (JJós) —, að þetta mál varðar alla þjóðina, og það mun vekja almenna ánægju, að landvarnirnar sjeu auknar sem unt er. Og það því fremur, sem landhelgisgæsla e/s Þórs hefir borið svo góðan árangur, þótt það skip sje ekki svo hraðskreitt sem þyrfti að vera.
Það, hvort heldur ætti að halda botnvörpungum burtu úr landhelgi eða hegna þeim, hefir oft verið talað um. Auðvitað er mest um vert að geta haldið þeim burtu. En það má ekki búast við, að þetta takist með 3 skipum. Þeir, sem hafa fleiri skip og minna svæði að verja en við, geta ekki hindrað þetta, og þá má nærri geta, hvernig fer hjá okkur. En það fer saman, að sektir fyrir landhelgisbrot eru bæði hegning og um leið aðvörun. En jeg skal benda á það, að hagnaðurinn við að fiska í landhelgi er svo mikill, að háar sektir hafa ekki eins mikil áhrif og ætla mætti. Háttv. þm. Vestm. (JJós) nefndi þann mann, sem hefir gert mögulegt, að skipið væri bygt. Þetta hefir hv. þm. rjettilega gert, því að þessum manni er það að þakka, að þetta getur orðið. Jeg mintist þessa manns, sjera Sigurðar Stefánssonar, í hv. Nd., og geri það og hjer. Jeg vona, að á þessu þingi verði sjeð fyrir nauðsynlegu fje til þess að halda úti ekki aðeins þessu skipi, heldur og öðru.