26.03.1925
Neðri deild: 43. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 264 í B-deild Alþingistíðinda. (46)
1. mál, fjárlög 1926
Bernharð Stefánsson:
Jeg á nokkrar brtt. á þskj. 235. Sumar þeirra flyt jeg einn, en á öðrum er jeg meðflutningsmaður. Jeg mun eingöngu gera grein fyrir þeim till., sem jeg flyt einn, því að jeg býst við, að fyrir hinum verði gerð grein af öðrum.
Þá er fyrst að minnast á 3. brtt. á þskj. 235, við 12. gr. 3, þar sem jeg fer fram á, að Ísafsfjarðarhreppi verði veittur 3 þús. kr. styrkur til þess að launa lækni, gegn jafnhárri upphæð annarsstaðar frá, og til vara, ef Alþingi skyldi finnast þetta of hátt, þá 2500 kr. Það eitt, að Ólafsfjarðarhreppur ætlar að leggja fram jafna upphæð á móti, ætti að sýna, hvílík nauðsyn það er fyrir íbúana að fá lækni, því að fyrir ekki fjölmennari hrepp en Ólafsfjörður er verða þetta mjög tilfinnanleg útgjöld. Aðalkrafa Ólafsfjarðarhrepps er sú, að þarna verði stofnað sjerstakt læknishjerað, þar sem þeim mikinn hluta vetrarins er fyrirmunað að ná til læknis með öðru móti en að hann sje þar. Þó ætla þeir að sætta sig við að launa lækninn að hálfu, ef fenginn er styrkur á móti. Það varð því að ráði fyrir okkur þm. kjördæmisins að fara ekki fram á annað en þennan styrk.
Jeg lít svo á, að hv. Alþingi hafi áður gefið Ólafsfirðingum loforð um styrk til læknishalds og að það loforð sje bindandi fyrir þingið. Að minsta kosti er enginn efi á, að hv. Alþingi hefir áður viðurkent nauðsynina á því að hafa sjerstakan lækni í Ólafsfirði. Þetta byggi jeg á því, að í fjárlögunum 1920 og 1921 var Ólafsfjarðarhreppi veittur 1500 kr. styrkur til þess að launa lækni, en sá styrkur var aldrei notaður, vegna þess að læknir fjekst ekki, en hefði hann fengist, mundi Alþingi hafa talið skyldu sína að láta fjárveitinguna standa áfram. Og nú, þegar á að reyna á ný, get jeg ekki skilið annað en Alþingi verði að álíta þessa gömlu fjárveitingu bindandi. Jeg vona því, að enginn hv. dm. greiði atkvæði á móti þessu.
Enda þótt það sje lífsnauðsyn íbúum Ólafsfjarðarhrepps að hafa lækni, er það vitanlegt, að þar er ekki mikið fyrir lækni að gera, og því litlar aukatekjur. Auk þess er sveitin mjög afskekt, og menn, sem búnir eru að vera hjer í Reykjavík á námsárum sínum, mun ekki fýsa að fara þangað. Því má ekki búast við, að læknir fáist nema fyrir sæmileg laun. Þess vegna sá jeg mjer ekki fært að stinga upp á minni upphæð. Ef varatillagan yrði samþykt, yrðu launin 5000 kr., og jeg held það sje varla hugsanlegt að leggja upp með minna.
Eins og jeg hef áður tekið fram, er nauðsynlegt, að þarna sje læknir. Ólafsfjarðarhreppur er fjöllum luktur á 3 vegu, og landleiðin er ófær meðfram sjó. Því er aðeins um 2 leiðir að gera til þess að ná til hjeraðlæknisins í Dalvík. Annaðhvort að fara sjóleiðina til Dalvíkur eða brjótast yfir fjöllin. En nú er oft svo á veturna, að báðar leiðir eru ófærar, og Ólafsfjarðarhreppur því gersamlega útilokaður frá læknishjálp. Landleiðin er ófær langtímum saman vegna ófærðar og illviðra. Hvað sjóleiðina snertir er fjörðurinn grunnur og brýtur á honum öllum, og geta Ólafsfirðingar ekki haft báta sína þar á veturna, heldur eru þeir hafðir á Akureyri eða Siglufirði, eða þá langt uppi á landi. Bátar eru því ekki til á veturna, enda oft ófært, þó að bátur væri.
Jeg þykist nú hafa sýnt fram á, að Ólafsfjarðarhreppur er langtímum saman á vetrum útilokaður frá læknishjálp, og vona jeg, að öllum hv. dm. sje ljóst, hvaða voði það er. Ríkið leggur öðrum landsbúum til lækna og launar þá að öllu, en nú bjóðast þessir menn til að taka svona mikinn þátt í kostnaðinum. Alþingi hlýtur því að samþ. brtt.; annars mundi það beinlínis dæma þessa menn til dauða, þegar svo er ástatt, að ekki er lífsvon nema læknir fáist.
Þessi málaleitun var send fjárveitinganefnd með gögnum, sem fyrir lágu, og hálffurðar mig á, að hv. nefnd skyldi ekki taka hana til greina.
Þá er 7. brtt. á þskj. 235, sem jeg vildi minnast á. Hún er við 12. gr. 13 b, og fer fram á, að veittur sje styrkur til sjúkrahúsbyggingar á Siglufirði, sem nemi 30000 kr., gegn 2/3 hlutum frá kaupstaðnum sjálfum. Þarna er að vísu farið fram á allverulega upphæð. En það má sýna ljóslega fram á, að þarna er þörfin engu síður brýn en í Ólafsfirði. Og jeg vil einkum taka það fram viðvíkjandi þessum styrk, að jeg lít svo á, að þótt þessi fjárveiting verði samþykt, er það ekki vegna Siglufjarðarkaupstaðar eingöngu, heldur og þjóðarinnar í heild Á sumrin safnast til Siglufjarðar fólk úr öllum hjeruðum landsins og dvelur þar yfir síldveiðitímann. Flest hefir það lítil og óhentug húsakynni og tugir manna búa kannske í sama herbergi, og má nærri geta, að það er ekki vistlegt. Í raun og veru er hjer um bil óhugsandi, að í þeim húsakynnum geti sjúklingur hafst við, innan um þá, sem hraustir eru. Auk þess eru frá Siglufirði gerð út mörg skip. Þeir, sem veikjast á þeim, geta ekki legið um borð. Á Siglufirði er enginn staður, þar sem hægt er að láta þá vera, og þá er ekki um annað að gera en að fara með þá til Akureyrar. En nærri má að það kostar bæði mikið fje og svo tímann, sem í það fer. Ef bætt er úr þessu, kemur það mörgum landsbúum að liði, auk Siglfirðinga sjálfra.
Í brjefi, sem hjeraðslæknirinn á Siglufirði skrifaðr okkur þingmönnum Eyfirðinga um þetta mál, færir hann skýr og ljós rök fyrir nauðsyn málsins, og bendir sjerstaklega á þá hættu, sem allri þjóðinni mundi stafa af því, ef drepsótt kæmi upp á Siglufirði um síldveiðitímann, þar sem annar eins fjöldi er þá samankominn þar og ómögulegt er að taka sjúklinga og einangra þá.
Jeg hafði ætlað mjer að benda á nokkur fleiri atriði viðvíkjandi þessu máli, og sjerstaklega fleiri atriði, sem hjeraðslæknirinn á Siglufirði tekur fram; en þar sem þarf að fara að fresta fundi, verð jeg að sleppa því. Get líka með betri samvisku slept að taka fleira fram vegna þess, að hv. fjvn. hefir haft þetta brjef handa á milli, og jeg veit ekki betur en það hafi líka legið frammi í lestrarsal, ásamt öðrum skjölum, sem snerta þetta mál. Veit jeg þess vegna, að fjvn. og mörgum þingmönnum muni vera málið nokkuð kunnugt. Jeg skal því ekki fara fleiri orðum um þetta atriði, en vonast til, að hv. þm. líti á nauðsyn málsins og ljái till. samþykki sitt.
Viðvíkjandi 10. brtt. á þskj. 235, þar sem farið er fram á allríflegan styrk til heilsuhadis á Norðurlandi, hefði jeg viljað segja fáein orð, en jeg ætla þó að sleppa því, þar sem jeg geri ráð fyrir því, að hv. 1. flm. þeirrar till. taki af mjer ómakið. Einnig getur verið, að sjerstakt tilefni gefist til þess seinna að víkja að því máli. Get jeg látið máli mínu hjer lokið, svo hægt sje að fresta fundi.