20.02.1925
Efri deild: 10. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1211 í B-deild Alþingistíðinda. (469)
13. mál, smjörlíki
Sigurður Eggerz:
Yfirleitt hefi jeg ekki fundið nein rök í ræðu hæstv. atvrh. (MG). Mjer skildist helst, að eigendur þessara fáu smjörlíkisgerða í landinu væru svo voldugir orðnir, að þeir hefðu sett þessi lög eða látið setja þau. (Atvrh. MG: Þetta hefi jeg aldrei sagt). Jeg held, að þingið mundi aldrei hafa gengið inn á þá braut af öðru en að menn með sjerþekkingu hafi bent því á, hvað rjeði annarsstaðar í þessum málum. Og að gefnu tilefni frá hæstv. atvrh. (MG) skal jeg taka það fram, að jeg er einn af þeim mönnum, sem hlut eiga í smjörlíkisgerð, og get jeg fullvissað hæstv. atvrh. um, að framleiðsla þessarar verksmiðju er svo lítil, að það munar engu fyrir smjörlíkisgerðina hjer í Reykjavík. Annað mál, ef smjörlíkisgerðin flytti niður á Stokkseyri eða Eyrarbakka, eins og jeg hefi bent á, að hagur væri fyrir smjörlíkisgerðina þar eystra.