16.03.1925
Efri deild: 31. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1225 í B-deild Alþingistíðinda. (483)

13. mál, smjörlíki

Atvinnumálaráðherra (MG):

Jeg vil aðeins árjetta það, að jeg tel mjög vanhugsað að draga málið fram í þinglok, og vil jeg mælast til þess við hv. nefnd, að hún sjái um, að málið komi í tæka tíð á dagskrá, svo að hægt verði að afgreiða það með góðu móti.

Annars fer jeg ekki að svara háttv. 1. landsk. (SE), þar sem hann er þegar svo steindauður, að hann má ekki bera hönd fyrir höfuð sjer, og allar staðhæfingar hans auk þess marghraktar.