03.04.1925
Neðri deild: 50. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1249 í B-deild Alþingistíðinda. (508)
13. mál, smjörlíki
0508Frsm. (Halldór Stefánsson):
Þetta frv. hefir fengið rækilega athugun. Það er stjórnarfrv. og er búið að ganga í gegnum 3 umr. í hvorri deild og hefir verið athugað af landbn. beggja deilda. Það hefir verið andstöðulaust að kalla, þar til einn maður úr landbn. Nd. fjekk æðri þekking og skarst úr fylgi við það. Þetta mun hafa orðið til þess, að frv. var tekið út af dagskrá, til þess að leita umsagnar Búnaðarfjelags Íslands um það. Er það nú komið úr þeim hreinsunareldinum óbrunnið enn, er reynslan sker nú brátt úr, hvort hv. þdm. eru svo sannfæringarliðugir, að þeir vilji nú bera það á bál.
Álit Búnaðarfjelags Íslands hefir landbn. sjeð, og ræður það frá að samþykkja frv. Landbn. hefir athugað mótmælaástæður Búnaðarfjelagsins, og jeg má lýsa yfir því fyrir hennar hönd, að afstaða hennar er óbreytt. Hún mælir með frv. sem áður, að undanskildum hv. þm. Barð. (HK).
Mótmælaástæður Búnaðarfjelagsins eru alveg þær sömu, sem hv. þm. Barð. bar hjer fram í deildinni — hvorki fleiri eða ítarlegri. Eina ástæðan, sem fram er færð gegn frv., er sú, að það gæti vakið tortryggni utanlands og innan gagnvart rjómabúunum. Þessar ástæður eru marg hraktar áður, og get jeg ekki verið að hafa það upp aftur. Jeg vil aðeins taka það fram, að sú skoðun kom eindregið fram, þegar frv. var samþykt 1923, að þær tryggingarráðstafanir, sem felast í 5. gr., væru einskisvirði. Jeg get þar einkum vísað til ummæla háttv. 4. þm. Reykv. (MJ). Hann segir svo:
„Jeg ætla að minnast örlítið á 5. gr. þessa frv. Mjer virðast ákvæði greinarinnar vera hreinn barnaskapur og engu með henni náð. Smjörið getur verið blandað með smjörlíki eftir sem áður, ef menn á annað borð vilja gera slíkt. En þó þetta sje gagnslaust, þá er það ekki meinlaust .... “
Þetta eru sömu ástæður, sem nú hafa verið bornar fram, og sýnir það ljóslega, að menn hafa komið auga á þegar í upphafi, að tryggingarákvæði 5. greinar eru einskisverð. Þegar svo hjer við bætist, að farið er fram á aðeins heimild fyrir stjórnina til þess að veita einu smjörbúi undanþágu frá þessu einskisnýta tryggingarákvæði, þá held jeg, að lítil ástæða sje til að vera á móti frv., og þegar hjer við bætist enn, að stjórnin getur sett skilyrði fyrir undanþágunni, ef þess þykir þörf, verður ástæðan gegn frv. enn minni, ef hún getur minni verið. Stjórnin gæti t. d. sett sjerstakt eftirlit með þessu búi; hún gæti gert því að skyldu að láta rannsaka útflutningssmjör þess efnafræðilega, og jafnvel sett þau skilyrði, að smjörið yrði eingöngu selt innanlands, enda munu smjörbúin selja smjör sitt engu minna innanlands en utan og við engu lægra verði.
Jeg sje svo ekki ástæðu til að segja fleira að sinni.