13.02.1925
Neðri deild: 6. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1274 í B-deild Alþingistíðinda. (542)
21. mál, styrkveiting til handa íslenskum stúdentum við erlenda háskóla
Bjarni Jónsson:
Jeg hefði farið að eins og Njáll og látið segja mjer þrisvar, að annað eins frv. og þetta væri lagt fyrir Alþingi, ef sjálfur mentamálaráðherrann hefði ekki verið búinn að segja mjer frá því áður, að það mundi koma fram. Nú verð jeg að trúa því, einkanlega er jeg sje það prentað, að í ráði sje, að Alþingi ákveði með lögum að veita alt að 4 mönnum á ári styrk til þess að stunda nám við erlenda háskóla. Hverjum mundi hafa dottið í hug, að það yrði ákveðið af Alþingi með lögum, hve margir stúdentar skyldu stunda nám erlendis? Þetta frv. er eitt hið allra lakasta, sem fram hefir komið af öllum ráðagerðum um sparnað: að ætla að útiloka menn frá því að nema erlendis fræði, sem ekki er kostur á að nema hjer, alla nema eina 4. Jeg skil ekki, að hv. þm. verði lengi að átta sig á því, hvað gera eigi við þvílíka tillögu. Þeir skilja tilgang stjórnarinnar, þann að spara, af því að hún hefir heyrt ýmsa hv. þm. stagast á því í fyrra, og síðan hefir það verið bergmálað í blöðum og á þingmálafundum. Allir tala um að spara. Hvað er það, sem á að spara ? Aura landssjóðs. Hver á þá aura? Þjóðin á þá sjálf. Hverjir eiga þá sonu, sem hjeðan fara til náms í önnur lönd? Þjóðin á þá! Og það er óhæfa að vilja halda í fje þjóðarinnar við hennar eigin sonu, svo hún geti ekki sent þá utan til þess náms, sem þeir óska og hennar eigin nauðsyn krefur. Það er yfir höfuð skökk grundvallarregla að ákveða tölu slíkra náms manna, sem styrk skuli fá af almannafje. Það dettur engum manni í hug, að námsmennirnir láti sjer slíkt lynda, nje foreldrar þeirra, en þeir eiga að vísu tilkall til þess sjóðs, sem hjer á að ráðstafa. Hitt er ekki nema rjett og samkvæmt loforði þingsins, að hver þeirra fái 1200 kr. á ári. Því þegar Íslendingar keyptu sjer fullveldi gegn því að gefa eftir danska styrki til íslenskra námsmanna, þá var það fyrirheit gefið hjer á Alþingi, að þessir menn skyldu fá eftirleiðis sem næst jafnháan styrk. Garðstyrkur var þá 1400 kr., en eyðslubelgirnir hjerna ljetu sjer nægja, að þeir fengju 1200 kr.
Jeg tel 2. gr. frv. góða, og ef breytt yrði 1. gr. þannig, að ákvæðið um tölu námsmanna fjelli burtu, en í þess stað tekin upp skilyrði þau fyrir styrknum, sem standa nú í fjárlögum, og raunar eru hin sömu og áður voru fyrir Garðstyrk, svo sem það, að námsmaðurinn hefði ekki 3. einkunn og sýndi vottorð um iðni o. s. frv., þá hefði jeg ekkert á móti því, að 2. gr. stæði óbreytt. Jeg mun svo ekki fara fleiri orðum um mál þetta að sinni. En því vil jeg þegar lýsa yfir, að mitt atkvæði fæst aldrei til þess að ákveða með lögum tölu íslenskra námsmanna við erlenda háskóla. Og það er von mín, að þingið skoði vandlega hug sinn áður en það láti slíkt fara frá sjer.