13.02.1925
Neðri deild: 6. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1276 í B-deild Alþingistíðinda. (543)

21. mál, styrkveiting til handa íslenskum stúdentum við erlenda háskóla

Forsætisráðherra (JM):

Mjer var kunnugt um það, að hv. þm. Dala. (BJ) líkaði ekki þetta frv. En jeg held satt að segja, að mótstaða hans stafi nokkuð af misskilningi. Jeg álít einmitt, að rjettur námsmanna sje miklu betur trygður með þessu frv. en nú er, þar sem Alþingi telur sig geta svift þá námsstyrknum hvenær sem því sýnist. Jeg held jeg megi fullyrða, að stúdentarnir sjálfir telji frv. til bóta. Jeg hefi talað við einn stúdent, sem bæði jeg og aðrir bera mikið traust til, og taldi hann frv. skynsamlegt. Það var auðvitað sagt í gamni, er háttv. þm. Dala. kvað tölu stúdenta eftir frv. 4 í alt. Auðvitað verða þeir 16 á ári, sem frv. gerir ráð fyrir að styrktir verði. Annað atriði var sýnilega rangt hjá hv. þm. Dala. Það er alls ekki útilokað, að fleiri menn stundi nám erlendis en þeir, sem ríkið styrkir; þó það styrki ekki nema 4 nýja menn árlega erlendis, þá eru þeir menn til hjer á landi, sem færir eru til þess að styrkja sonu sína til náms sjálfir. Því fer fjarri, að jeg fái sjeð, að frv. sje svo ófært sem hv. þm. Dala. lætur í veðri vaka. Jeg tel hjer mörgu vel stilt í hóf og gagnlegt að samþykkja frv. eins og það er. Það nær auðvitað engri átt að segja, að hjer sje ákveðið, hvað margir stúdentar megi stunda nám við erlenda háskóla. Það er aðeins ákveðið, hve margir geti orðið styrks aðnjótandi. En svo var einnig áður um Garðstyrk. Það voru til svo og svo margir skamtar, en eftir því sem sjóður Garðs óx, þá fjölguðu skamtarnir. En þó styrkurinn væri þannig takmarkaður, þá var vitanlega ekki þar með ákveðið, að fleiri mættu ekki stunda nám en þeir, sem styrkinn fengju. Hjer kemur það ekki til greina, að Íslendingar höfðu ótakmarkaðan aðgang. Það er að nokkru leyti rjett hjá hv. þm. Dala., að það lítur svo út, sem þingið hafi að undanförnu bygt fjárveiting sína á þeirri meginreglu, að veita öllum stúdentum styrk, sem þess æsktu, og að svo ætti að vera. Jeg verð að segja, að jeg hefi aldrei skilið það svo, að sjálfsagt væri, að í stað Garðstyrksins kæmi eins ótakmarkaður rjettur til styrks frá ríkinu handa ísl. stúdentum.

Jeg vona, að hv. deild taki vel í þetta mál og láti það ganga til nefndar. Seinna mun það sýna sig, hvernig menn líta á einstök atriði í frv. Að lokum skal jeg minnast á það, er háttv. þm. Dala. (BJ) taldi það of lítið, að ríkið styrkti til náms 16 menn á ári. Jeg hygg þetta nægilegt. Jeg hefi nokkuð athugað, hve margir eru við nám erlendis, sem stunda það nám, er segja má, að nauðsynlegt sje, að þeir stundi erlendis, eða eðlilegt og gagnlegt landsins vegna. Jeg veit með vissu um 18, sem styrktir eru nú til náms; þeir eru eitthvað fleiri, því að skýrslur eru ekki komnar frá öllum. Þar af stunda 8 verkfræði, 4 hagfræði, 1 vátryggingar, 1 dýrafræði, 1 eðlisfræði, 1 stærðfræði, 1 germönsk fræði og 1 sagnfræði. Jeg get hugsað, að til væri einstöku maður, sem væri í vafa um það, hvort nauðsynlegt væri fyrir landið að hafa fleiri verkfræðinga við nám ytra í einu en átta, eða fjóra hagfræðinga. Sem sagt, hjer verður að líta á allar ástæður, og vænti jeg, að mönnum sýnist frv. hóflegt. Það hefir að vísu komið fyrir, að námsmenn ytra hafa verið í einu nær 30. Það er hægt að reikna út, hvað slíkt kostar. En hætt er við, að styrkur til stúdenta hjer heima verði fremur skorinn við neglur, þegar svo ríflega er veitt til þeirra, sem ytra nema. Því takmörk eru sjálfsagt fyrir því, hvað mikið fje menn vilja veita til stúdenta yfirleitt.