23.02.1925
Neðri deild: 14. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1290 í B-deild Alþingistíðinda. (555)

21. mál, styrkveiting til handa íslenskum stúdentum við erlenda háskóla

Bjarni Jónsson:

Jeg ætla að byrja á því, sem hæstv. fjrh. (JÞ) endaði á. Hann heldur, að það sje erfiðara að færa 4 niður í 3 eða 2 en að breyta fjárlögum. En þetta er ekki erfiðara en svo, að ef einhverjum þóknast að fara fram á að gera þessa fækkun á næsta þingi, þá fæst það nefndarlaust í gegnum báðar deildir, með allra samþykki, nema ef til vill mínu. En að því er snertir minn skilning á máli þessu, sem hæstv. fjrh. talaði um, þá er hann ekki myrkur. Því þegar verið var 1918 að semja um samband landanna, þá var með samþykki allra flokka gefinn eftir Garðstyrkurinn af vorri hálfu, en það fylgdi með, að landið tæki að sjer sömu skyldu gagnvart stúdentunum. Var þetta að vísu ekki opinber samþykt, en alment þingloforð, sem var á allra vitorði, og ekki síst samninganefndarinnar. Og sá, sem segir öðruvísi frá þessu, segir blátt áfram ekki satt. Og skal jeg leiða að þessu svo mörg vitni sem menn vilja. Hæstv. fjrh. vildi bæta úr þessu frv. með því að minnast á, að upphaflega hefðu 8 þús. kr. staðið í fjárlögunum í þessu augnamiði. Sú upphæð var lítil, en hún var altaf aðeins áætlunarupphæð, því óvíst var, hvað margir sæktu um styrkinn; en til þess var ætlast, að hver stúdent, sem utan færi, fengi 1200 kr. á ári. Þetta var ekki framkvæmt fyrst í stað, og stóð á nokkru að koma þinginu í skilning um, að stúdentarnir ættu að fá þetta, og sýnir það, hve mikið gagn er að því að segja hitt og annað um lögin, án þess að láta það standa í þeim. Þannig eru þessir bláfátæku stúdentar að líkindum þeir einu menn, sem bíða fjárhagslegt tjón við sambandslögin, og er kyn, að mönnum finnist það svo sanngjarnt sem raun ber vitni um. Nú vill hæstv. stjórn bæta nokkuð úr þessu, með því að fara bil beggja, skera ekki alveg niður fjárveitinguna, en brúka þó ekki meira en hófi gegnir. Jeg verð nú að segja, að mjer fyndist ekkert sjerlega voðalegt, þó 30 þús. kr. væru veittar í þessu skyni. Menn hafa sjeð það svartara í augnamiðum, sem ekki voru alveg eins göfug og þetta, að jeg ekki minnist á, hvað mönnum hefir verið ósárt um að taka lán til taps eins án þess að nokkur minsta þörf væri á því. En sannleikurinn sjest hjer sem oftar, að mest er skrafað um smáupphæðirnar og einkum um fje, sem gengur til þessara þarfa.

Hæstv. fjrh. (JÞ) sagði, að með þessu móti mætti hafa hönd í bagga með, hversu margir læsu þessa og þessa grein, svo nákvæmlega megi ráða, hvað margir verði málfræðingar eða stærðfræðingar eða verkfræðingar. En jeg sje nú ekki, hvernig hægt er að girða fyrir, að þessir 16 lesi ekki allir það sama, ef þeir vilja það. Lögin ákveða ekkert um það. Það verður því að bæta því við og setja nýja nefnd til að segja fyrir um, hvað hver skuli lesa í það og það skiftið. Eins verður að sjálfsögðu t. d. um verkfræðingana að reikna út, hvað margir verkfræðingar hverfi í ráðherrastól, verði gerðir að kennurum eða borgarstjórum, til þess að sjeð verði á hverjum tíma, hvað mörgum megi leyfa að lesa þá grein. En hvernig færi nú, ef sú ágæta öld rynni upp, að allir núlifandi verkfræðingar væru dauðir, en sæmilega margir búnir að læra í staðinn, miðað við þarfir landsins, t. d. 6. Og nú kæmu þeir heim; þá verður einn ráðherra, annar borgarstjóri, þriðji kennari, fjórði dæi. Jeg sje ekki, að þá yrði annað ráð fyrir hendi en segja: Sól stattu kyr í sex ár, meðan þeir næstu eru að læra. Annars er svo gott að vita, að þrátt fyrir allan þennan fjölda, sem utan fer að dómi manna, þá hefir Alþingi orðið að styrkja mann sjerstaklega til þess að læra veðurfræði, svo að veðurfræðistofan hjer geti starfað, og eins hefir það orðið að taka húsabyggingarmeistara upp á sína arma. Og hvað halda menn, að komi þá á þingsins bak, ef þessi lög koma í gildi? Afleiðingin verður sú ein, að fleiri og fleiri mönnum verður veittur sjerstakur styrkur á hverju ári. Er því sýnt, að þetta frv. er aðeins hagkvæmt fyrir þá hv. þm., sem kjörfund vilja halda hjer í þingsalnum.