08.04.1925
Efri deild: 50. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1302 í B-deild Alþingistíðinda. (569)
21. mál, styrkveiting til handa íslenskum stúdentum við erlenda háskóla
Frsm. meiri hl (Sigurður Eggerz):
Þetta frv. er flutt sem stjfrv. í Nd, og hafa þar verið gerðar á því lítilfjörlegar breytingar. Aðalbreytingin er sú, að nefnd skuli sett til þess að gera tillögur um það, hverjir fái styrkinn. Mentamálanefnd hefir sent þetta mál til umsagnar háskólaráðsins, og fylgir brjef þess áliti nefndarinnar. Meiri hl. nefndarinnar hefir fallist á þessar brtt.:
1. Við 1. gr. Orðin „hjer á landi“ falli burt. Það er af því, að komið hefir fyrir, að íslenskir stúdentar hafa tekið próf í öðrum löndum, og þótti ekki rjett að útiloka þá frá styrk.
2. brtt. er við 2. gr., að fyrir „4“ komi 6. í frv. er gert ráð fyrir, að styrkurinn verði veittur fjórum stúdentum, en í brjefi háskólaráðsins segir meðal annars:
„Tölu styrkjanna treystist ráðið ekki til að breyta, en vill aðeins taka það fram, að mjög væri það æskilegt, ef Alþingi sæi sjer fært að gera hámarkið nokkru hærra, t. d. 6 styrki í stað 4, þó aldrei nema venjan yrði að veita færri. Stjórnin myndi tæpast nota slíka heimild að ástæðulausu“.
Nefndinni þótti rjett að taka þetta til greina og hækkaði töluna.
Þá er 3. brtt., við 3. gr., um það, að styrkinn skuli aðeins veita ötulum stúdentum og að á það skuli litið, hverra manna þjóðin þarfnast, ennfremur að meir skuli litið á hæfileika en efnahag.
Nefndin hefir fallist á þetta, en þykir þó rjett, að fátækur maður gangi fyrir um styrk, að öðru jöfnu.
Þessar eru aðalbrtt. meiri hl.
Það sýnist alveg sjálfsagt, að þjóðin styrki menn til náms erlendis, því að áður áttu þeir meiri rjett og betri aðstöðu, sem þeir hafa mist án saka af sinni hálfu. En þótt meiri hl. nefndarinnar hafi fallist á þessar tillögur, þá get jeg sagt fyrir mig, að jeg er frv fylgjandi, þótt þær fengju ekki þær undirtektir, sem jeg óska.
Frv. er eigi að síður rjettarbót og spor í áttina.