14.04.1925
Efri deild: 51. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1323 í B-deild Alþingistíðinda. (583)
21. mál, styrkveiting til handa íslenskum stúdentum við erlenda háskóla
Forsætisráðherra (JM):
Hv. 5. landsk. (JJ) fer hjer enn sem endranær með tóma óra. Hann talar um þessar 8 þús. kr., sem veittar voru í fjárlögum. Fyrsta árið batt jeg mig alveg við þær og veitti ekki stúdentum erlendis meiri styrk en sú upphæð hrökk til. En þegar þingið kom saman næst eftir, var því ótvírætt lýst, að þetta væri aðeins áætlunarupphæð, og það eina, sem fast væri, væri það, að hver stúdent skyldi fá 1200 kr. á ári. Öll fjárhæðin færi alveg eftir því, hve margir stúdentar sæktu um styrk. Þetta fjárlagabrot, sem hv. þm. (JJ) er að tala um, er því sannarlega tómir órar og vaðall, og ekkert annað. Það hefir aldrei verið fundið að því við stjórnina, hvorki mig nje háttv. 1. landsk. (SE), þegar hann sat á ráðherrastóli, að hagað var styrknum þannig. Meira að segja byrjaði háttv. 1. landsk. á sínum tíma á því að borga stúdentunum út í dönskum krónum, og ljet þingið sjer það vel líka. Hv. þm. (JJ) getur því ekki neitað því, hve feginn sem hann vildi, að þingið hefir alveg skorið úr um þetta og talið þetta áætlunarupphæð, þangað til í fyrra.
Um styrk til iðnaðarmanna hefi jeg sagt það, sem jeg vildi segja um það mál, og sje enga ástæðu til að taka það upp aftur.
Háttv. þm. (JJ) sagði, að þessar styrkveitingar hefðu ekki komið fyrir Garðstyrkinn. Víst ætlaðist Alþingi til, að svo væri. Um það er enginn efi. Hitt er annað mál, að ekki hefir þingið að minni skoðun nokkurn tíma skuldbundið sig til að veita styrkinn ótakmarkað um ókomnar tíðir.
Þá ber háttv. þm. það á íslenska stúdenta, er stunda nám erlendis, að þeir sjeu óreglusamir og stundi illa nám sitt. Þetta er mjög rangt, fjarri öllum sanni. Jeg hefi það fyrir satt, og byggi það á eftirgrenslunum mínum, — frásögn trúverðugra, kunnugra manna o. fl., — að stúdentar þessir sjeu bæði reglusamir og ástundunarsamir. Auðvitað er það, að enginn ráðherra getur persónulega vakað yfir framferði þeirra allra úti um öll lönd, Danmörku, Noreg, Þýskaland, Frakkland og jafnvel Vesturheim. En eins og jeg sagði áður, eru svo miklar líkur fyrir því, að stúdentar vorir erlendis sjeu yfirleitt reglusamir og ástundunarsamir, að stappar nærri fullum sönnunum. Í Noregi er að vísu einn, sem var nokkur óreglumaður meðan hann var hjer, en er nú sagður orðinn reglumaður. Bókstaflega talað hefi jeg engan stúdent heyrt nefndan, sem ekki stundaði nám sitt að minsta kosti sæmilega. Og yfir höfuð er siðferði stúdenta bæði hjer og annarsstaðar talið mjög gott. Það er því alrangt hjá háttv. þm. (JJ) að gefa í skyn, að öðruvísi sje ástatt. Hinu neitar enginn, að það geti ekki hafa komið fyrir, að einhver stúdent hafi bragðað vín. Má háttv. þm. telja það stórsynd, ef hann vill. En hitt er honum ekki leyfilegt, að bregða stúdentum nú um syndir stúdenta fyrir 40–50 árum. Þá voru alt aðrir tímar. Var þá sú tíska, að margir ungir menn, fremur en nú, drukku vín, en það mun alveg óvíst, að hv. þm. fari rjett með, að íslenskir stúdentar hafi þá verið yfirleitt vínhneigðari en aðrir stúdentar. En sem sagt, engin ástæða er til að tala um það hjer.
Það er ósvinna að bera upp á stúdenta nú, að þeir sjeu slarkarar og landinu til skammar. Það eru ósannindi. Stjórnin hefir fengið þveröfugan vitnisburð um það frá heiðarlegum mönnum. En ef það er tilætlunin að banna stúdentum algerlega að koma á veitingastaði erlendis, þá þarf áreiðanlega að hafa sterka vörðu til að gæta þeirra. Og vænti jeg því, að háttv. þm. (JJ) muni styðja dyggilega að því, að við getum haft sendiherra í öllum þeim löndum, sem stúdentar eru, þó ekki væri til annars en að þeir gætu litið eftir stúdentunum, sem hann telur svo nauðsynlegt.
Við vitum það allir, að ekkert óorð fer af stúdentum hjer í Reykjavík, að stúdentalífið er talið mjög heilbrigt, og þó er víst, að þeir eru alveg upp og ofan eins og þeir, sem utan hafa farið. Þess vegna álít jeg, að mjer sje heimilt að krefjast þess, að hv. þm. (JJ) sanni dylgjur sínar um óreglu íslenskra stúdenta, sem nú eru erlendis. Uns hann gerir það, mun jeg trúa umsögnum heiðarlegra manna um reglusemi þeirra og ástundun. Má vera, að hv. þm. (JJ) tíni til þennan eina efnilega mann, sem var máske ekki eins reglusamur meðan hann var hjer heima, sem skyldi.
Jeg get svo ekki verið að pexa frekar um þetta við hv. þm. (JJ). Jeg hefi bent á, að íslenskir stúdentar eiga ekki ókvæðisorð hans skilið. Og þótt fundist hafi óreglumenn í þeirra hópi fyrir 40–50 árum, er ekki leyfilegt að fordæma einu sinni þáverandi stúdenta fyrir þær sakir.