12.03.1925
Neðri deild: 31. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1338 í B-deild Alþingistíðinda. (596)

24. mál, fiskveiðar í landhelgi

Jón Baldvinsson:

Eins og sjest af nál., er jeg ekki samþykkur hv. meiri hluta sjútvn., sem leggur til, að þetta frv. verði samþykt. Frv. fer fram á það, að lagt sje bann við því, að íslenskir ríkisborgarar geti tekið á leigu erlend skip til þess að stunda fiskiveiðar hjer við land. Á þannig að girða fyrir það, að haldið sje áfram í sömu átt og byrjað var á í Hafnarfirði í fyrra. Deilt hefir verið um, hvort hægt sje eftir fiskiveiðalögunum frá 1922 fyrir íslenska menn að leigja erlend skip til fiskiveiða. En þáverandi atvrh. (KIJ) svaraði fyrirspurn um þetta í fyrra og lýsti þar þeim skilningi stjórnarinnar, að þetta væri heimilt. Álít jeg, að hentugt sje að hafa slíkt í lögunum og varhugavert að meina það með öllu. Það hefir einu sinni komið fyrir, að hjer um bil allur stórskipaflotinn hjerna var í einu seldur út úr landinu. Finst mjer því, að varhugavert væri, ef slíkt kæmi aftur fyrir, að nýjum atvinnurekendum væri algerlega bannað að taka á leigu erlend skip sakir þessara laga. Finst mjer því ekki rjett að samþykkja þetta frv., heldur beri að láta standa við það, sem er. Einnig má benda á það, að haustið 1923 var talið óhjákvæmilegt að gera eitthvað í þessa átt, til þess að hjálpa næststærsta kaupstað landsins, og hygg jeg, að hv. frsm. (ÁF) hafi manna best vitað, hversu nauðsynlegt það var. Líkt getur komið fyrir aftur, og ættum við því ekki í vímunni út af velgengninni í ár að loka öllum sundum. Það gæti orðið til þess eins, að brátt þyrfti að opna þau aftur. Þess vegna ætla jeg, að best sje að samþykkja ekki frv. þetta, heldur láta standa við ákvæðin í núgildandi fiskiveiðalöggjöf og skilning fyrverandi stjórnar á þeim. Mun óþarft að þrengja það meira.