12.02.1925
Neðri deild: 5. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1344 í B-deild Alþingistíðinda. (614)
25. mál, heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að innheimta ýmsa tolla og gjöld með 25% gengisviðauka
Jón Baldvinsson:
Því er venjulega svo varið með þessa almennu tolla, að þegar þeim er komið á, þá er fólki sagt, að þeir eigi aðeins að gilda til bráðabirgða. Við sama tón kvað, þegar lögin um 25% tollhækkunina voru sett hjer á þinginu í fyrra. Þá var sagt, að þessi tollhækkun ætti strax að falla úr gildi, þegar gengi á sterlingspundi yrði skráð hjer 25 kr. eða neðar. En nú kemur annað hljóð úr horni. Strax þegar einhverjar líkur eru til þess, að pundið komist niður í 25 kr., þá þykir sjálfsagt að veita stjórninni heimild til þess að láta tollhækkunina haldast áfram um ótiltekinn tíma.
Jeg álít, að allir þessir vandræðatollar, sem dembt var á í fyrra, eigi nú þegar að hverfa úr sögunni. Það hefir sýnt sig, að enginn halli hefði orðið á rekstri ríkissjóðs síðastl. ár, þó að þessum þungbæru sköttum, verðtollinum og þessum 25% gengisviðauka, hefði ekki verið komið á. Því er svo varið með þessa tolla sem aðra, að þeir koma tiltölulega ljettast niður á þeim, sem einhverju hafa úr að spila. Fátæki fjölskyldumaðurinn verður langt um harðar úti en efnaði maðurinn. Þess vegna er ranglátt að halda slíkum tollum við. Vildi jeg því mælast þil þess, að frv. þetta yrði felt nú þegar. Það sýnist lítið vit vera í því að halda dauðahaldi í slíka tolla, þar sem þeir eru augljóslega mjög ranglátir og þar sem vel er hægt að komast af án þeirra, eins og reynsla síðasta árs sýnir. Þar að auki er jeg ekkert ginkeyptur fyrir því að leggja núverandi hæstv. stjórn það vald í hendur, sem frv. fer fram á.