21.02.1925
Neðri deild: 13. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1348 í B-deild Alþingistíðinda. (620)

25. mál, heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að innheimta ýmsa tolla og gjöld með 25% gengisviðauka

Halldór Stefánsson:

Af því að jeg hefi skrifað undir nál. með fyrirvara, þykir mjer hlýða að gera grein fyrir atkvæði mínu.

Jeg lít svo á, að vörutollurinn hafi upphaflega verið pólitískt neyðarúrræði og væri fúsari að fella hann en hækka. En þörf ríkissjóðs er mikil. Það þarf að borga skuldir ríkisins og það þarf að teggja fje til framkvæmda í landinu.

Ef fram kynni að koma brtt. um að taka vörutollinn undan þessari 25% gengishækkun, áskil jeg mjer rjett til þess að geta greitt henni atkv.