05.03.1925
Efri deild: 23. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1363 í B-deild Alþingistíðinda. (640)
25. mál, heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að innheimta ýmsa tolla og gjöld með 25% gengisviðauka
Jónas Jónsson:
Jeg vil taka það fram út af niðurlagsorðum hæstv. fjrh., að mjer finst vanta skýringu á því, hvers vegna tollurinn á ekki að leggjast niður í árslok 1926. Eins og frv. ber með sjer, er frumskilyrðið fyrir því, að tollurinn haldist, að ísl. króna verði til muna lgri en sem svarar gullgengi. Jeg ímynda mjer, að þótt hstv. fjrh. hafi skrifað bók um lággengi, geri hann samt ekki ráð fyrir því, að lággengi haldist um tíma og eilífð.
Jeg vil benda hstv. fjrh. á það, að þar sem mikill hluti stuðningsmanna stjórnarinnar mun hallast að því að svifta ríkissjóð um 1/2 milj. kr. tekjum af tóbakseinkasölunni, má það heita frekja, að ætlast til þess, að Alþingi samþykki þennan almenna skatt um leið og stjórnin sýnir þá ljettúð að fleygja frá landssjóði gróða af tóbakseinkasölunni, til hagnaðar fáeinum mönnum.