13.03.1925
Efri deild: 29. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1375 í B-deild Alþingistíðinda. (650)
25. mál, heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að innheimta ýmsa tolla og gjöld með 25% gengisviðauka
Sigurður Eggerz:
Jeg get sagt fyrir mitt leyti, að mjer virðist ekki skifta miklu máli, hvort tímatakmarkið er sett 1926 eða 1927. En jeg heyri það, að í fjhn. hafi verið lögð áhersla á 1926, og samkomulag nefndarinnar bygt á því. Af því jeg var lasinn, var jeg ekki á fundi í nefndinni, þegar málið var afgreitt, en hinsvegar veitti jeg ekki athygli brtt. hæstv. fjrh. (JÞ) í morgun, svo að jeg gat ekki skotið á fundi í nefndinni til þess að hún yrði athuguð þar. Nú vil jeg skjóta því til hæstv. forseta (HSteins), hvort ekki megi fresta málinu nú og reyna að fá samkomulag um það í nefndinni. Mætti það verða til þess að spara miklar umræður að óþörfu. Jeg geri ráð fyrir því, að hæstv. fjrh. (JÞ) sje ekki á móti því, að málið verði í þessu skyni tekið af dagskrá.