18.03.1925
Efri deild: 33. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1376 í B-deild Alþingistíðinda. (654)

25. mál, heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að innheimta ýmsa tolla og gjöld með 25% gengisviðauka

Jónas Jónsson:

Jeg skal láta þess getið, að jeg var ekki viðstaddur 2. umr., og vil því aðeins bæta nokkrum orðum við það, sem jeg sagði við 1. umr. Það varð að samkomulagi í nefndinni að samþykkja frv. eins og það kom frá háttv. Nd. Þó skal þess getið, að form. var veikur, og vorum við aðeins fjórir á fundi. Jeg var heldur tregur til þess að samþykkja frv., skoðaði skattinn sem neyðarúrræði, en þó varð það að samkomulagi að láta svo standa til ársloka 1926. Síðan hefir sú breyting orðið á, að tveir af nefndarmönnum hafa breytt afstöðu sinni og greitt atkv. með brtt., sem gengur í aðra átt. Mjer þykir þetta miður vegna mannanna sjálfra, að þeir skuli ekki hafa sjeð sjer fært að fylgja nál. sínu.

Viðvíkjandi málinu sjálfu er það að segja, að ef þetta á að vera varanlegur og almennur tollur, þá er nafn frv. skakt. Og þess verður að krefjast, að því verði breytt, til þess að það segi rjett til um eðli og innihald frv., hver sem næst verður fjrh., því að nú eru þær ástæður ekki fyrir hendi, sem voru orsök frv. í fyrra.

Við 1. umr. urðu nokkrar hnippingar milli mín og hæstv. fjrh., sakir þess að hann vildi ekki, að þetta frv. væri sett í flokk með öðrum tekjuaukafrv., sem fyrir liggja. Hæstv. stjórn hefir samt sem áður engar skýringar gefið á þeim mun, sem þar er á milli, og það er því einkennilegra, að hún skuli vilja framlengja þetta, en svifta ríkissjóð samtímis stórtekjum í afnámi tóbaksverslunarinnar.

Það er alveg óþarfi af hæstv. fjrh. að tala um hrossakaup við mig nú eða endranær. Jeg er lítið fyrir þá verslun. Sú stjórn, sem kastar burt stórtekjum til þess að hjálpa vissri stjett manna, þeirri, sem best er stödd, hún má ekki kippa sjer upp við það, þó að þeir menn, sem aðeins fylgja henni að þeim málum, sem góð eru og rjettlát, sjeu tregir til þess að samþykkja nefskattinn.

Jeg verð að leiðrjetta eina rangfærslu hæstv. fjrh., sem fram kom við 1. umr. Jeg mintist á tóbaksverslunina og gat þess, að tekjur hennar hefðu numið um hálfri miljón króna. Nákvæmlega talið var gróðinn í fyrra 450 þús. kr. Hann gaf það í skyn, að jeg hefði vísvitandi rangfært þetta, og mætti þannig halda áfram að fella töluna um 50 þús., uns ekkert yrði eftir. En stjórnin græðir ekkert á að láta mikið yfir sjer í tóbaksmálinu. Þegar á það er litið, að gróði tóbaksverslunarinnar hefir farið vaxandi og að sá vöxtur er mikill, má gera ráð fyrir því, að hann verði 500 þús. kr. á næstu árum. Því að nú eru þær birgðir því sem næst uppseldar, sem fyrir hendi voru í landinu, þá er einkasalan byrjaði.