17.04.1925
Neðri deild: 58. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1385 í B-deild Alþingistíðinda. (666)
25. mál, heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að innheimta ýmsa tolla og gjöld með 25% gengisviðauka
Fjármálaráðherra (JÞ):
Það er auðvitað sjálfsagt, að næsta þing getur tekið þetta mál til athugunar, þó að nú sje svo ákveðið, að lögin eigi ekki að verða sjálfdauð fyr en við árslok 1927.
En þó að næsta þing taki málið til athugunar, þá verður það naumast á þeim grundvelli, er hv. 2. þm. Reykv. (JBald) vill vera láta, að lkka tollauka þennan smám saman, enda tel jeg það misráðið á meðan ekki er fært að ljetta af tollum þeim, er hvíla á ýmsum aðfluttum nauðsynjavörum.
Jeg tel alveg vafalaust, að byrjað verði að lækka tolla á nauðsynjavörum, en láta þá halda áfram að hvíla óbreytta um stund á öllum óþarfavarningi eða munaðarvörum, og þá vitanlega að viðbættum gengisviðaukanum.
Mjer dettur síst í hug að neita því, að jeg hafi ekki verið þess vel vitandi, hvað jeg var að gera, er jeg bar fram brtt. mína í hv. Ed., enda hafði jeg tekið það fram hjer í þessari hv. deild. Jeg taldi ríkissjóði tryggara að fá að njóta þessara tekna á meðan þörf hans væri mest, og þeirri skoðun fær enginn mig til að breyta.