17.04.1925
Neðri deild: 58. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1387 í B-deild Alþingistíðinda. (668)
25. mál, heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að innheimta ýmsa tolla og gjöld með 25% gengisviðauka
Fjármálaráðherra (JÞ):
Mjer datt aldrei í hug að segja, að þessi 25% gengisviðauki hvíldi ekki á nauðsynjavörum, en hitt sagði jeg, að jeg teldi vafalaust, að byrjað verði að ljetta tolli af nauðsynjavörum, og jeg get bætt við, að áður en þessi tollhækkun sje numin af óþarfavarningi væri líka rjett að fara lengra og ljetta bæði gengisviðaukanum og öðrum tollum af nauðsynjavörum. Enda skil jeg ekki annað en allir sjeu mjer sammála um það, að eigi að ljetta þessum tolli af munaðarvörunum, þá eigi þó nauðsynjavörurnar að ganga fyrir.
Annars virðist mjer mál þetta vera svo þrautrætt, að ástæðulaust sje að tefja lengur atkvgr. þess.