04.03.1925
Efri deild: 22. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1389 í B-deild Alþingistíðinda. (673)

12. mál, fiskifulltrúi á Spáni og Ítalíu

Frsm. meiri hl. (Jóhann Jósefsson):

Það gladdi mig, eins og eflaust fleiri sjávarútvegsmenn, er það vitnaðist, að stjórnin ætlaði að leggja frv. um fulltrúa í Miðjarðarhafslöndunum fyrir þetta þing. Þeir, sem sannfærðir eru um, að erindrekstur í Miðjarðarhafslöndunum sje nauðsynlegur fyrir okkar land og hafa sannfærst enn betur um nytsemi þessa starfs eins og það hefir verið framkvæmt hingað til, munu sannarlega verða ánægðir yfir því að sjá nú þessu málið komið á fastan grundvöll; a. m. k. er þetta skoðun meiri hl. sjútvn. Það er að því er svona starf snertir mikill munur á því, hvort farið er suður í lönd endrum og eins eða að sendimaðurinn er látinn hafa þar fastan bústað.

Aðstaða búsetta mannsins verður alt önnur en ferðamannsins til að fylgjast ræð gangi þeirra mála, er okkur varðar suður þar.

Nú er gengið út frá því, að við höfum aðeins einn fulltrúa þar syðra fyrst um sinn, og jeg býst við því, að mörg ár muni líða áður en þeim verði fjölgað. Enda má gera ráð fyrir, að þegar þarna er maður, sem er búsettur í landinu og getur gefið sig allan og óskiftan við þessum starfa, að hann geti leyst hann svo af hendi, að nægilegt sje nú í bili, og máske hin næstu ár. Vonandi er, að stjórnin verði svo heppin í vali á manni til þessa starfs, að það sýni sig í framtíðinni, að það hafi orðið til verulegra hagsbóta okkar landi að hafa fulltrúa í Miðjarðarhafslöndunum. Annars er óþarft að fjölyrða um þessa skoðun mína og meiri hl. nefndarinnar, því jeg tók þetta skýrt fram í umr. um fjárlagafrv. hjer í þessari hv. deild á þinginu í fyrra. Það er aðallega þetta, sem meiri hl. nefndarinnar leggur mesta áherslu á, og sem alt ríður á, bæði í þessu starfi og öðru, að vel verði vandað til manns í þessa stöðu, ef frv. verður samþ. Jeg mintist einnig á það í fyrra í umr. um þetta hjer í deildinni, að almenningi hjer á landi væri ekki eins kunnugt um starfsemi erindreka vors suður þar eins og vænta mætti og álíta yrði nauðsynlegt. Jeg veit ekki, hvort það sje beinlínis nauðsynlegt að taka það fram hjer, en jeg hefi heyrt því haldið fram, lítt rökstuddu þó, að of mikið kynni að verða bygt á þessum skýrslum, sem búast megi við frá erindrekanum. Jeg held það verði þó, er til lengdar lætur, heppilegast öllum almenningi hjer á landi að fá sem gleggstar skýrslur þar sunnan að. Jeg hygg það verði betra fyrir almenning en að ganga þess máske algerlega dulinn, hvernig viðhorfið er þar suður frá, hvort það er gott eða ilt okkar viðskiftum og atvinnurekstri. Jeg hefi heyrt því haldið fram, að þessar skýrslur (um markaðshorfur og fleira) frá erindreka vorum kynnu, ef þær yrðu birtar jafnóðum, að hafa þau áhrif, að menn gerðu ráðstafanir, bygðar á augnablikshvötum, miður heppilegar fyrir markaðinn, t. d. keptust of mjög við að bjóða út fisk á óhentugum tíma og feldu hann meira í verði en nauðsynlegt væri. Eða á hinn bóginn færu eftir frjettum um stígandi verð og hjeldu í vöru sína sjer til skaða. Það kann að vera, að eitthvað sje hæft í þessu, en á hinn bóginn hygg jeg það að öllu leyti best almenningi að vita að staðaldri sem mest og nákvæmlegast um alt, sem viðkemur viðskiftum vorum við Suðurlönd, og ekki síst þegar þessi erindrekstur er kostaður af sæmannafje að mestu leyti. Þá á árangurinn af starfi þessa erindreka vors að vera sem aðgengilegastur til afnota almenningi, sem njóta á góðs af störfum hans. Að vísu veit jeg ekki betur en þær upplýsingar, sem komið hafa frá erindreka vorum þar suður, hafi hingað til verið notaðar af þeim, sem til náðu, en til almennings yfir höfuð hafa þær ekki getað náð með því fyrirkomulagi, sem verið hefir. Sjútvn. gat ekki orðið sammála um þetta frv., en þó held jeg, að ekki sje eins mikill skoðanamunur og ætla mætti, er nefndin hefir klofnað. Háttv. minni hl. kannast vel við og hefir fallist á, að það hafi mikla þýðingu fyrir okkar land að hafa erindreka þar suður frá við og við, og að það hafi haft góðan árangur. Hið eina, sem á milli ber, þegar á alt er litið, er það, að háttv. minni hl. vill ekki gera þetta að fastri stöðu. En jeg held því fram, að það hljóti að vera rökrjett afleiðing af viðurkenning þess, að góður árangur hafi þegar orðið af starfi erindrekans, að árangurinn verði framvegis ennþá betri, þegar hann er orðinn búsettur þar suður frá og hefir ekki annað um að hugsa, en má gefa sig allan við þessum starfa. Og þetta á ekki síst við, þegar þau lönd eiga í hlut eins og Spánn og Ítalía, sem eru svo nauðaólík okkar landi að öllu leyti. Staðhættir allir, siðir og venjur eru þar allir aðrir en hjer. Þegar þetta er athugað, munu að minsta kosti þeir, sem til þekkja í okkur nálægari löndum, þar sem þær þjóðir búa, sem oss eru skyldari, kannast við, að þess muni síst vanþörf, að erindrekinn sje búsettur þar suður frá, þar sem um fjarlægari lönd og ólíkari þjóðir er að ræða. Meira að segja, við þurfum í framtíðinni að ala upp menn og menta til að hafa þennan starfa á höndum. Þetta er ennþá á byrjunarskeiði hjá okkur; við eigum enga hæfa menn, sem uppaldir eru við eða mentaðir til að reka erindi síns lands erlendis, eins og þetta frv. ætlast til að verði gert. Hæstv. stjórn verður því að sjá fyrir því, að einn eða tveir ungir menn eigi kost á að búa sig undir slíkt starf. Þetta mætti best verða á þann hátt, þegar íslenskur erindreki er orðinn búsettur á Spáni, að ungur og efnilegur íslenskur maður væri settur honum til aðstoðar, með það fyrir augum að kynnast þjóðinni, tungu hennar, siðum og landsháttum, og ætti þá þessi maður síðar að hafa góða aðstöðu til þess að verða sjálfur erindreki fyrir land sitt, ef þörf væri á. Jeg bendi á þetta í þessu sambandi vegna þess, að það er vitanlegt, að nú eru aðeins sárafáir menn til, sem gætu komið til greina að verða skipaðir í slíkar stöður, sem hjer um ræðir. Það hefir heyrst ýmislegt í þá átt, að erindreki okkar, sem verið hefir þar syðra, hafi átt við ýmsa örðugleika að stríða í sínu starfi og aðstaða hans öll verið erfiðari en átti að vera, vegna þess að stjórn Íslands hafi ekki búið hann út með þau gögn, sem hann hefði þurft að hafa í höndum sem sendimaður landsins, til þess að geta notið sín til fulls í starfinu. Það er því ósk meiri hl. nefndarinnar, sem treystir núverandi stjórn fyllilega til þess, ef það verður ofan á, að búsettur erindreki skuli skipaður í Miðjarðarhafslöndunum, að þá muni stjórnin leitast við eftir megni að kosta kapps um, að hann hafi þau gögn í höndum, sem nauðsynleg verður að telja til að bæta aðstöðu hans. Það hlýtur að liggja í augum uppi, að það er mjög nauðsynlegt, að maður, sem er fulltrúi Íslands á Spáni og Ítalíu, hafi þau skilríki, sem tekið verði mark á þar suður, bæði af hinum æðri stjórnarvöldum og öðrum, sem hann þarf að eiga skifti við. Meiri hl. nefndarinnar lætur þess getið í nál., að hann óski þess, að fulltrúinn geti komið fram sem opinber sendimaður hins íslenska ríkis. Þetta er gert í því skyni, að það geti haft praktiska þýðingu, og við leggjum því áherslu á, að stjórnin komi því svo fyrir, að ef um örðugleika er að ræða á þessu sviði, þá geri hún sitt til að ryðja þeim örðugleikum úr vegi.