06.03.1925
Efri deild: 24. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1417 í B-deild Alþingistíðinda. (686)
12. mál, fiskifulltrúi á Spáni og Ítalíu
Forsætisráðherra (JM):
Jeg vildi aðeins benda hv. 5. landsk. (JJ) á það, að það er ekki rjett hjá honum, er hann sagði, að jeg hefði ekki á sínum tíma gert skýra grein fyrir málalyktum viðvíkjandi konsúlnum í Genúa.
Á þingi 1921 var mál þetta mjög rætt og frá ýmsum hliðum. Vil jeg því vísa hv. 5. landsk. (JJ) á þingtíðindin 1921 D- deild, þar sem eru umr. út af þáltill. um framkvmd á 7. gr. sambandslaganna. Þar getur hv. þm. fundið alt, sem er að finna um þetta mál. En þó jeg hafi bent hv. þm. á þetta áður, hefir hann víst ekki gert sjer það ómak að lesa þessar umr. En jeg vil komast hjá því að endurtaka það, sem jeg hefi einu sinni sagt fullglögglega.