06.03.1925
Efri deild: 24. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1422 í B-deild Alþingistíðinda. (692)
12. mál, fiskifulltrúi á Spáni og Ítalíu
Frsm. meiri hl. (Jóhann Jósefsson):
Hv. 2. þm. S.-M. (IP) telur sig gleðjast yfir því, að eitthvað sje að koma fram við 3. umr., sem hann hafi spáð eða sagt fyrir við 2. umr. Jeg get ekki komið auga á skynsamleg rök hjá honum frekar nú en þá. Þessi brtt., sem komin er fram, er stíluð gegn einum manni í landinu. (JJ: Gegn öllum þeim skuldugu). Hvers vegna leggur þá hv. þm. ekki til, að enginn embættismaður megi skulda?
Þetta hjá hv. 2. þm. S.-M. (IP), að hjá meiri hl. nefndarinnar væri staðan, en ekki starfið aðalatriði, var sagt alveg út í loftið. Það er ef til vill rjettast að benda á, hvað það er, sem virðist vaka fyrir þessum hv. þm. og hv. flm. brtt. Það er auðlesið milli línanna, að þeim er ekki kappsmál að fá þarna fiskifulltrúa. En reynslan mun skera úr um það, hvort heppilegra reynist að hafa þarna búsettan mann eða einhverja hlaupaskyttu. Það er alveg rangt að gera okkur upp þær sakir, að við leggjum mest kapp á, að staðan sje glæsileg. Hv. þm. (IP) fagnar því, að þessar umr. koma í þingtíðindunum, en jeg held, að það, sem hann hefir látið frá sjer fara um þetta mál, geti alveg eins verið gagnrýningu undirorpið eins og það, sem við hinir höfum. lagt til málsins.
Það var eitt, sem hv. 5. landsk. mintist á, sem mjer fanst hafa við talsverð rök að styðjast. Hann sagði, að ekki væri gott, að fiskifulltrúinn væri háður atvinnurekendum. Jeg er honum alveg samdóma um þetta. Jeg teldi mjög ilt, ef hann væri háður t. d. fiskútflytjendum. En þó að hann skuldi landsverslun, get jeg ekki sjeð, að það þurfi að vera neinn Þrándur í Götu fyrir því, að hann ræki sitt starf vel, og þar sem upplýst er, að samið er um skuld þessa umtalaða manns, er ennþá minni ástæða til að ætla, að hún hefði nokkur áhrif á starf hans. Það hefði verið miklu rjettara fyrir hv. 5. landsk. að hnýta því aftan við, að hann vildi bara ekki hafa þennan ákveðna mann, því að þetta ákvæði hans nær til svo margra, að það gæti beinlínis valdið því, að enginn yrði skipaður í stöðuna.