12.03.1925
Neðri deild: 31. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1425 í B-deild Alþingistíðinda. (699)
12. mál, fiskifulltrúi á Spáni og Ítalíu
Atvinnumálaráðherra (MG):
Þetta frv. gekk breytingarlaust gegnum hv. Ed., og jeg vona, að það fái eins góðar undirtektir hjer í deildinni.
Það er öllum kunnugt, að við höfum svo mikilla hagsmuna að gæta á Spáni og Ítalíu, að nauðsynlegt er að hafa þar fulltrúa. Tvö síðustu árin hefir að tilhlutun stjórnarinnar og beggja bankanna verið sendur maður suður þangað, til þess að grenslast um fiskmarkaðinn. En það fyrirkomulag verður ekki talið hagkvæmt, enda má búast við því, að ekki fáist ætíð hæfur maður í slíkar skottuferðir, og mun betra að maðurinn sje þar búsettur. Það hefir tvívegis komið fyrir, að sendimaðurinn hefir verið ferðbúinn heim, en þá fengið skeyti frá bönkunum hjer um að vera lengur. Þeir vildu hafa hann lengur þar syðra síðast, en hann var þá bundinn við störf hjer heima, sem hann varð að sinna.
Jeg leyfi mjer að óska, að máli þessu verði vísað til sjútvn. hjer, eins og gert var í hv. Ed.